Úrval - 01.11.1966, Qupperneq 89
PAPA HEMINGWAY
87
í hina löngu ökuferð til Ketchum.
Ég vissi því, að Ernest mundi finna
mig þar.
Það gerði hann líka. Duke Mac
Mullen var með honum. En í stað
þess að koma yfir að barnum og
drekka úr glasi með mér eins og
venjulega, bað Ernest mig um að
ljúka sem fyrst úr mínu og hitta þá
svo fyrir utan.
Við lögðum af stað í ökuferðina.
Það ríkti alger þögn, og til þess að
rjúfa hana, fór ég að segja Ernest
frá áætluninni, sem Cooper átti
aðild að, sem var nú í góðu gengi,
og s amningunum við Twentieth
Century-Fox-kvikmyndafélagið, en
það var ófáanlegt til að borga
meira en 125.000 dollara. En þá
greip Ernest skyndilega fram í fyr-
ir mér: „Vernon Lord langaði til að
koma líka til að taka á móti þér,
en ég vildi ekki leyfa honum það.“
„Hvers vegna.“
„Ríkislöggunnar.“
„Hvað?“
„Ríkislöggunnar. Þeir eltu okk-
ur alla leið. Spurðu Duke bara.“
„Ja .... það var að vísu bíll á
eftir okkur, þegar við fórum frá
Hailey . . .. “
„Það var einmitt þess vegna,
sem ég vildi ná þér út af vínbarn-
um sem fyrst. Var hræddur um,
að þeir létu skríða til skarar og
tækju okkur þar.“
„En Ernest, þessi bíll beygði út
af veginum við Picabo,“ sagði
Duke.
„Þeir hafa líklega farið hina leið-
ina. Það tæki þá lengri tíma, svo
að ég vildi vera kominn burt frá
Shoshone, þegar þeir næðu þangað."
„En Papa,“ sagði ég og reyndi
að ná fullu valdi á rödd minni og
hugsun, „hvers vegna er Ríkislög-
reglan að elta þig?“
„Það er fjárans klandur. Heilt
helvíti. Þeir hlera alls staðar. Það
er þess vegna, sem við notum bíl
Dukes. Það hefur verið komið fyr-
ir hlustunartækjum í mínum. Það
eru hlustunartæki alls staðar. Get
ekki notað símann. Pósturinn er
skoðaður. Sko, það var símtal mitt
við þig, sem kom mér á sporið. Þú
manst, að sambandið slitnaði? Sko,
þannig komu þeir einmitt upp um
sig.“
„En langlínusamtöl slitna oft ....
Hvernig ætti slíkt að þýða ?“
„Ég á kunningja, sem vinnur hjá
símafélaginu í Hailey. Hann athug-
aði það fyrir mig, hvar sambandið
hefði verið slitið. Það var hérna,
sko hérna megin, en ekki í New
ork, ekki þín megin.“
„En hvað kemur það þessu máli
við?“
„f guðanna bænum, Hotch, reyndu
að nota höfuðið, maður. Þú hringd-
ir í mig, var það ekki? Þess vegna
hefði sambandið átt að slitna þín
megin, ef allt hefði verið venjulegt
og löglegt. En sambandið slitnaði
hérna megin, í Hailey, en símtöl
fara einmitt öll í gegnum Hailey.
Það þýðir, að Ríkislögreglan hlust-
aði á samtalið hérna megin og það
orsakaði einmitt truflunina." Hann
var mjög æstur. Ég hallaði mér aft-
ur á bak í aftursætinu. Mig lang-
aði til þess að spyrja Ernest, hvers
vegna hann væri á þeirri skoðun,
að hann væri eltur og því hlerað
væri eftir símtölum hans og hvers