Úrval - 01.11.1966, Page 108
W. Somerset
Maugham.
eftir Ronald Seth
Hinn 25. janúar 1874
fæddist yngsti sonur
ROBERTS MAUG-
HAMS, sem var lög—
fræðilegur ráðunautur
við brezka sendiráðið 1 París, en
hann átti fimm syni fyrir. Átta ár-
um síðar dó móðirin, og þessi son-
ur, sem var skírður WILLIAM
SOMERSET, viðurkenndi áttatíu
árum seinna, að tímanum hefði
ekki tekizt að græða sárið, sem hann
hlaut við móðurmissinn. Tveim ár-
um eftir lát konu sinnar lézt Ro-
beht Maugham úr krabbameini og
William var komið í fóstur til föð-
urbróður síns, séra Maughams, sem
var sveitaprestur í Kent í Englandi.
Prestshjónin voru miðaldra og
barnalaus og höfðu ekkert vit á
barnauppeldi. Það heyrðist sjaldan
hlátur á prestssetrinu og það var
litið með vanþóknun á lestur ann-
arra bóka en Biblíunnar. William
var einmanna og vansæll. Föður-
bróður hans áleit hann bæði þrjózk-
an og latan, en í rauninni var hann
heilsutæpur og því oft lasinn. Auk
þess var hann feiminn og stamaði,
en frændi hans taldi það stafa af
ólund.
Lífið á prestssetrinu var gerólíkt
hinu frjálsa og glaðværa heimslífi
í París, þar sem hann hafði eytt
tíu fyrstu árum ævi sinnar. Ekki
tók betra við þegar honum var
106