Úrval - 01.08.1968, Síða 5
Úrval
Ágúst
1968
Eftir að Martin Luther King var myrtur í apríl s.l., hefur hans.
verið getið mjög lofsamlega um allan heim.
Hann var hoðherí fríðar og réttlcetis, og stefna hans
var einföld og skýr.
Tveimur mánuðum fyrír dauða sinn flutti liann eftirfarandi ræðu:
Segið að ég
hafi verið þrumuklerkur
Eftir MARTIN LUTHER KING
Ég álít, að okkur sé það
mjög hollt að hugsa
öðru hvoru um dauð-
ann af fyllztu alvöru.
Hann bíður okkar allra,
og ég leiði hugann oft að honum,
og einnig minni eigin útför. Þetta
er engin þráhyggja, því öðru hvoru
spyr ég sjálfan mig, hver yrðu loka-
orð mín til ykkar, ef ég ætti nú
brátt að kveðja ykkur fyrir fullt
og allt.
Ef einhver ykkar verður við-
staddur þegar ég verð borinn til
moldar, vil ég ekki, að útförin verði
löng né viðhafnarmikil.
Og ef þið fáið einhvern til að
flytja nokkur minningarorð, látið
hann þá fyrir alla muni ekki tala
of lengi.
Öðru hvoru velti ég því fyrir mér,
hvað ég vildi, að hann segði.
Segið honum að minnast ekki á
það, að ég hafi fengið friðarverð-
laun Nóbels. Það er hreint aukaat-
riði.
Segið honum að geta þess ekki
heldur, að ég hafi fengið 300 til 400
önnur verðlaun. Það er ekki heldur
mikilvægt. Segið honum að ræða
ekki um, hvar ég gekk í skóla.
Ég vil frekar, að einhver minnist
þess dags, þegar Martin Luther
Readers Dig'est
3