Úrval - 01.08.1968, Síða 15
Heimkoman til Jerúsalem
Eftir NORMAN KOTKER
aAð Jerúsalem eru átta
hlið. Allt fram til „6
daga stríðsins“ við Ar-
aba í júní í fyrra voru
fjögur þeirra ævinlega
lokuð. Einu þeirra, sem bar heitið
Fagrahlið eða Gullnahlið, hafðiver-
ið lokað á þann hátt, að það var
múrað upp í það á 16. öld. Sá, sem
gerði það, var Suleiman soldán
hinn dýrðlegi. Þetta gerði hann til
þess að tryggja, að Messías kæmi
aldrei í gegnum það hlið, en sam-
kvæmt arfsögninni átti hann ein-
mitt að halda innreið sína í borg-
ina um hlið þetta. Hinum þrem
hliðunum, Zionshliðinu, Jaffahlið-
inu og Nýjahliði, var lokað ai
Jórdaníustjórn árið 1948 til þess að
halda ísraelsmönnum frá borginni.
„Fætur okkar munu standa innan
hliða þinna, Ó, Jerúsalem,“ syngja
Gyðingar. „Biðjið fyrir friði Jerú-
salemsborgar. Friður veri innan
veggja þinna.“
í 19 ár hafði engum Gyðingi ver-
ið leyft að stíga fæti sínum inn
fyrir veggi „Gömlu borgarinnar“,
þ.e. gamla borgarhlutans, sem hélt
áfram að lúta yfirráðum Araba.
Eftir grimmilegt umsátur í upphafi
styrjaldarinnar milli Araba og
Gyðinga árið 1948, flúðu Gyðingar
úr þeim hluta gamla borgarhlutans,
sem þeir höfðu búið í. Hann hefur
staðið næstum tómur síðan. Hann
er rústir einar eftir sprengjur, og
bænahús hans og aðrar bygging-
Catholic Digest
13