Úrval - 01.08.1968, Side 21
19
Iiér fara á eftir orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu.
Prófaðu kunnáttu þína í íslenzkri tungu og auk þú við orðaforða þinn með
þvi að finna rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri
en eina rétta merkingu að ræða.
Til gamans getur lesandi gefið sjálfum sér einkunn og metið þannig getu
sína, þ.e. 0,5 fyrir hvert algerlega rétt svar. E'f þú finnur rétta merkingu
17—18 orða, ertu að• líkindum mjög fróöur, en fróður, ef þú færð 15—16
orð rétt. Ef þú þekkir færri en 8, ertu fáfrnöur.
1. tjása: úlpa, band, lauslætisdrós, snepilx, flækja, snyfsi, hrúga.
2. að hlunnfara: að baktala, að pretta, að setja bát á flot, að leika á, að
draga bát á land, að rannsaka ýtarlega, að tortryggja.
þvengur: skinnræma, hengilmæna, sprettur, skinnreim, skinnúlpa, áhald,
bugða, gaili.
4. frátök: þjófnaður, hórdómur, svik, missir, áflog, aukakostnaður, gæfta-
leysi, fiskileysi, hagleysi, allsleysi.
5. það kýiir: öidurnar lægir, öldurnar risa hátt, það hvessir, það lygnir,
Það dimmir, það birtir, það bungar út, það kólnar, það grefur í.
6. gúaldi: uppköst, fiskúrgangur, stormur, ofbeldi, skýjabakkar, fiskur,
yfirgangsseggur, næðingur, ósjór.
7. að hnybbast: að stangast, að fitna, að nöldra, að þrjóskast við, að fljúg-
ast á, að deila.
8. dyntóttur: illur, köstóttur, bragðvis, þver, duttlungafullur, misvitur,
hnökróttur, órólegur.
9. halloki: sá, sem sigrar, brekka, áhald til að mæla halla, sá, sem biður
lægra hlut, ónytjungur, afreksmaður.
1( búsifjar: nábýli, skaði, ánauð, áhyggjur af búrekstri, búhokur, illdeilur
nágranna, afurðir af búi, búrekstur, sambýli.
11. karnaður: hór, hætta, vandræði, hrakningar, kynmök, úrgangur, harka,
basl, ófarir, veizla.
12. böng: tengur, klaufsk kona, vandræði, kýr, tappi, skreytt belti, mjó
isræma, lítil bjalla, hlutur, sem tengir saman.
13. að kárna: að glettast, að rífast, að versna, að verða ískyggilegt, að
batna, að sti’íða, að hreinsa.
14. keikur: borubrattur, álútur, skakkur, ávani, duttlungar, áraþollur,
hnarreistur, bátur.
15. að ylna: að versna, að taka til fótanna, að batna, að hlýna, að kólna,
að spyrja, að leyna.
16. obbi, kuðungur, galli, stórmenni, krabbi, fugl, mestur hluti, lítið brot, arða.
17. að þána: að úldna, að fúna, að meyrna, að þrjózkast, að teygja, að þiðna,
að verða hljóður.
18. armingur: kaldi, kvörtun, gola, öldugangur, erfiður róður, fyrirhöfn,
ræfili, fátæklingur, ótti, vesöld.
Sjá svör á bls. 101