Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 39
37
INNIBYRGÐ REIÐ, HÆTTA Á FERÐUM
Geti foreldrarnir talað opinskátt
hvor við annan um ósamkomulag
og deilumál, tjáð reiði sína, ást og
hlýju á ótvíræðan og sannan hátt,
sýna þeir jafnframt barni sínu, að
ótvíræð tjáning raunverulegra til-
finninga fullorðinna í milli getur
verið eitt af því bezta, sem lífið
hefur að bjóða ykkur.
☆
Þegar þig verkjar í hvert bein í skrokknum, af þreytu, máttu þakka
Skaparanum fyrir það, að þú ert ekki sild.
Q.R.
Auðmýktin, litillæti hjartans, furðulegt fyrirbrigði. Á því augna-
bliki er þú heidur. að þú hafir tileinkað þér þennan eiginleika, hefur
þú misst hann.
Við hjónin stóðum við hlið á vegi nokkrum í Yorkshire og dáðumst
að útsýninu. Þá sáum við híl koma upp eftir veginum. Ég flýtti mér
að opna hliðið, svo að bíllinn kaemist leiðar sinnar. Rétt áður en bíll-
inn kom að hliðinu, sá ég farþegann taka upp hatt, sem lá í aftursæt-
inu, og skella honum á höfuð ökumannsins. En ökumaðurinn flýtti
sér siðan að taka ofan og brosa til mín. Svo þegar billinn var kominn
í gegn, flýtti farþeginn sér að taka hattinn aftur af höfði mannsins
og setja hann aftur í aftursætið.
Fru H. A. C. McKay.
Ég var dálítið hissa á merkinu á samkvæmisskyrtunni, sem af-
greiðslustúlkan sýndi mér, o.g spurði því: ,,Það stendur á þessu merki:
85 prósent dakron, 10 prósent nylon. Hvað ætli þessi 5 prósent séu,
sem á vantar?"
Hún leit á miðann, leit svo brosandi á mig og svaraði spurnarrómi:
„Kannske hleypur hún um 5 prósent?11
G.J.B.
Ráö unciir rifi hverju
Unga eiginkonan var að leita að hinni fullkomnu gjöf handa eigin-
manni sínum. Þegar hún var að leita að gjöfinni í herraverzlun einni,
vöktu nokkrar gjafir hrifningu hennar, en á merkisspjaldinu, sem
hjá þeim stóð, gat að líta þessa klausu: „Handa manninum, sem á
allt.“ En fjárhagurinn leyfði ekki neina af þeim gjöfum.
Þess í stað keypti hún þrjár golfkúlur af uppáhaldstegund hans. Og
með þeim lét hún fylgja spjald, sem hann heldur nú geysilega mikið
upp á og ber alltaf í veskinu sínu. En á spjald þetta hafði hún skrif-
að eftirfarandi orð: „Handa mannimim, sem er allt.“
A. W.