Úrval - 01.08.1968, Page 40
Flestir fá einhvers kon-
ar höfuðverk. 7 af
hverjum 10 fullorðinna
nota kvalastillandi lyf
við höfuðverkjum a.m.k.
einu sinni í mánuði. Á ári hverju
eru 24 milljónir (Bandaríkjamanna.
Þýð.) nægilega hrjáðir af höfuð-
verkjum til þess að leita lækna.
Þig kennir ekki til í sjálfum heil-
anum, þegar þú hefur höfuðverk.
Það má skera í heila mannsins og
stinga verkfærum inn í hann, brenna
hann og frysta, og maðurinn mun
samt ekki finna til. Hin sársauka-
aumu svæði á höfðinu eru vefirnir,
sem þekja heilann, og æðarnar í
kringum heilann, en ekki í honum.
Höfuðverkur getur orsakazt af
Barátta
vísindamanna
við
höfuðverkinn
Eltir LAWRENCE GALTON
þrýstingi á þessa vefi eða æðar af
völdum æxlis eða ígerðar, þótt slíkt
sé sjaldgæft.
Önnur orsök höfuðverks er út-
breiðsla verkjar, en þar er um að
ræða svipað fyrirbrigði og finnst,
þegar einum fingri er difið í ískalt
vatn. Fyrst dofnar fingurinn. Eftir
fimm mínútur fer mann að verkja í
hann. Brátt skynjar maður verkinn
á þann hátt, að það er sem hann
komi frá öllum fimm fingrunum.
Dr. George A. Schumacher, for-
stöðumaður taugakerfissjúkdóma-
deildarinnar í læknadeild Ver-
montháskóla, álítur, að ástæða fyrir
höfuðverk í 90% allra tilfella sé sú,
að æðar í höfðinu þenjast út. Æða-
veggirnir togna og þrýsta á næmar
38
Popular Science