Úrval - 01.09.1971, Qupperneq 14
12
ÚRVAL
UM TUNGUNA
• Gott er að hafa tungur
tvær og tala sitt með hvorri.
• Það er tungunni tamast
sem hjartanu er kærast.
• Oftast er tungutrúr tíð-
indafár.
• 111 tunga orkar meiru en
öflug hönd.
• Illrar tungu sár er óhægt
að græða.
• Tungan sór, en hjartað
var hvergi nærri.
• Vegur tunga, þó vopn
bresti.
• Skammt nær tungan.
AUt íslenzkir málshœttir.
fram að glíma við það, löngu eftir
að við höfum ýtt því til hliðar og
snúið okkur aftur að okkar dag-
legu störfum, farið í mat eða jafn-
vel að sofa. Undirvitundin er stór-
furðuleg tölva, sem reynir fjöl-
margar, ólíkar leiðir og tengsl, sem
nota mætti til þess að leysa vanda-
málið, þangað til hún finnur hið
rétta. Allt nýtt, sem þú sérð eða
reynir í daglegu lífi án þess að
gefa því sérstakan gaum. grópast
í undirvitundina, og undirvitundin
mun tengja slíkt hinni upphaflegu
hugmynd, þ.e. vandamálinu, sem
þú fékkst henni til þess að leysa.
Þaulvanur sölumaður, sem átti
við geysilega samkeppni að etja,
sagði mér einu sinni, að flestir
harðduglegir sölumenn tali við
sjálfan sig allan daginn. „Við ger-
um þetta til þess að kæfa aðrar
raddir“, segir hann, „sko, raddir
mögulegra viðskiptavina, sem eru
alltaf að segja okkur, að þeir hafi
ekki þörf fyrir vörur okkar. Við-
brögð þeirra grafa undan sjálfs-
trausti okkar alla vikuna. Dugleg-
ur sölumaður lætur þá ekki kom-
ast upp með að grafa undan sjálfs-
trausti sínu, heldur talar hann við
sjálfan sig, stappar þannig í sig
stálinu og styrkir sjálfstraust sitt.
Hann segir við sjálfan sig, að í
flest skiptin, þegar hann hefur
tryggt sér pöntun, hafi hann feng-
ið ,,nei“ í byrjun. Hann mótar svör-
in, sem hann mun svo hafa á reið-
um höndum við mótbárum erfið-
viðskiptavina. Hann mótar þau í
huga sér og svarar þannig væntan-
legum mótbárum viðskiptavinanna.
í þessum samtölum sínum við sjálf-