Úrval - 01.09.1971, Blaðsíða 52

Úrval - 01.09.1971, Blaðsíða 52
50 ÚRVAL líka hægt að bjarga einhverjum af vöruflutningavögnunum. Það var samt ekki hægt að hreyfa neina af vögnunum, sem voru enn á tein- unum, fyrr en neyðarhemlarnir væru losaðir. Til þess að slíkt yrði unnt, varð að loka fyrir loka í loftleiðslu lestarinnar á þeim stöð- um, þar sem leiðslan var slitin frá vögnunum, sem oltið höfðu út af teinunum. Svo yrði að tengja eim- reiðirnar aftur við vagnana og dæla lofti frá þeim í gegnum kerfið, þangað til nógur þrýstingur hefði myndazt til þess að losa hemlana. Einhver varð því að fara aftur að rofnu leiðslunum og loka lokunum með handafli. HUNDRAÐ TONNA HALASTJARNA. Bill Chandler eimreiðarstjóri hafði verið með í ferðinni til þess að líta eftir störfum eimreiðar- starfsmannanna. Nú yfirgaf hann lausu eimreiðirnar og sagði við vél- stjórann: „Vertu kyrr hérna hjá þeim‘“. Eldurinn var þegar tekinn að breiðast út til íbúðarhúsa og ann- arra bygginga beggja vegna tein- anna, og hitinn frá honum var orð- inn ofboðslegur. Chandler vafði ut- an um sig gömlum heryfirfrakka, og bretti þykkum kraganum alveg upp til verndar hálsi og andliti. Hann lagði nú af stað í áttina til loganna. Hann var með litla tal- stöð í hendinni. „Ég gat ekki hugsað um neitt annað en vatnsefniscyanidegasið", segir hann. „Ég vissi, að margir mundu deyja, ef það væri þegar kviknað í því eða ef það læki úr geyminum. En væri geymisvagninn enn á teinunum óskemmdur, yrði ég að koma honum burt úr bæn- um“. Nú sprakk einn af logandi prop- anegasgeymunum í miðju eldhaf- inu í loft upp með ofboðslegum hávaða. Þrýstingurinn af spreng- ingunni var slíkur, að það lá við, að Chandler kastaðist á hnén. Sprenging þessi, sem varð 5 mín- útum eftir að vagnarnir fóru út af teinunum, splundraði þúsundum gluggarúða og vakti fjölda fólks á margra mílna svæði. Risavaxin eld- súlan, sem steig hátt í loft upp og breiddist þar út í allar áttir, sást greinilega 100 mílum í burtu. Vagn- inn, sem var 100 tonn að þyngd, þeyttist í gegnum loftið eins og logandi halastjarna, og úr honum lak logandi fljótandi gasið, sem kveikti í tugum húsa, áður en vagn- inn skall að lokum til jarðar úti á miðri götu í mílufjórðungs fjar- lægð. Það varð önnur ægileg sprenging rétt fyrir framan Chandler, þegar hann gekk fram hjá fyrsta vöru- flutningavagninum, sem stóð á teinunum. Það rigndi logandi glóð- armolum og braki um allar götur í grenndinni. Æðisgengið öskur eld- hafsins var yfirþyrmandi. „Ég er ekki hræddur við að viðurkenna, að ég var ofboðslega skelkaður", segir Chandler. „Ég baðst fyrir upp- hátt“. Svo kom hann auga á geymis- vagninn með vatnsefniscyanide- gasinu, en hann var rauð- og hvít- málaður. Hann stóð þarna alveg ó-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.