Úrval - 01.09.1971, Page 30

Úrval - 01.09.1971, Page 30
28 Morris hafði sultarlaun sem bók- haldari, en Golda tók heim þvotta til þess að vinna þannig fyrir dag- gjöldum Menachems í leikskóla. Golda undi þessum aðstæðum ekki vel. Og árið 1928 réð hún sig til fulls starfs sem ritari Verka- málaráðs kvenna. Brátt varð hún einn af fremstu leiðtogum Hista- drut, verkalý'ðssambandsins, sem var einnig virkt í landnámi Pale- stínu. Á vegum þess hlutu fjölda margir innflytjendur þjálfun og fræðslu, en Gyðingar streymdu nú til Palestínu í stöðugt stærri stíl. Og Histadrut hjálpaði þeim að koma sér fyrir í nýju húsakynnunum. En hún varð að fórna hjónabandi sínu fyrir starfið, og að því kom, að þau Golda og Morris hættu að búa sam- an. Hann dó í ísrael árið 1951. Árið 1947 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar, að Palestínu skyldi skipt í tvö ríki næsta ár, Gyðingaríki og Arabaríki. Arabar tóku að búa sig undir styrjöld, og Golda var send til Bandaríkjanna til þess að afla fjár á meðal bandarískra Gyðinga til vopnakaupa. Leiðtogar Gyðinga í Palestínu gerðu ráð fyrir, að hún gæti í mesta lagi safnað 7 milljón- um dollara í Ameríku. En Golda æddi um þver og endilöng Banda- ríkin í hálfan þriðja mánuð, hélt ræður á 2—3 fundum á dag og hætti ekki fyrr en henni hafði tek- izt að safna 50 milljónum dollara, sem var furðulega há upphæð. Ben- Gurion varð að orði, þegar hún sneri aftur til Palestínu: „Einhvern tíma verður það haft að orði, að ein Gyðingakona hafi aflað þess ÚRVAL fjár, sem gerði okkur mögulegt að stofna ríki okkar.“ Stofnun Ísraelsríkis var lýst yfir þ. 14. maí árið 1948. Og Golda var ein hinna 37, sem undirrituðu sjálf- stæðisyfirlýsingu ríkisins. Þá grét hún af gleði. INNFLYTJENDAFLÓÐ Ben-Gurion, sem var æðsti mað- ur bráðabirgðastjórnar ísraels og varð síðar fyrsti forsætisráðherra landsins, sendi Goldu til Sovétríkj- anna sama ár sem fyrsta sendifull- trúa Israels erlendis. Sjö mánuðum síðar kallaði Ben-Gurion hana heim og skipaði hana verkalýðsmálaráð- herra. Hún gengdi því starfi í sjö ár. f því starfi sínu hafði hún geysi- leg áhrif á gang þessara mála, og þau áhrif eru til frambúðar. Auk verkalýðsmála sá hún um húsnæðis- mál og opinberar framkvæmdir og það á því tímabili, þegar 700.000 Gyðingar streymdu til ísraels, flest- ir örsnauðir, svo að íbúatala lands- ins tvöfaldaðist. Hún hrinti í fram- kvæmd ýmsum atvinnubótaáætlun- um, svo sem vegagerð og öðrum op- inberum framkvæmdaáætlunum til þess að veita fólki þessu atvinnu. Hún skipulagði fræðslu og starfs- þjálfun á vinnustað bæði í iðnaði og landbúnaði. Hún sá einnig til þess, að hús væru byggð með eins miklum hraða og framast var unnt, svo að innflytjendurnir þyrftu ekki að búa lengi í tjöldum og kofum. Síðan hefur fjöldi innflytjenda komizt upp í 1 milljón og 250 þús- und. Og Golda bendir oft á þá stað- reynd með stolti, að engin fjöl- skylda sé húsnæðislaus og ekkert
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.