Úrval - 01.09.1971, Page 44
42
ÚRVAL
Þetta er tálin bezta Ijósmynd, sem tekin var af Churchill. Höfundur hennar
er Ysuf Karsh.
svampi, og vissi ég þá, að hann væri
að ljúka við að baða sig, en þá var
sem hvalur væri að bylta sér þarna
inni. Svo lá Churchill kyrr um stund
og skemmti sér við það að blása
sápukúlur. Eftir stundarkorn voru
baðherbergisdyrnar opnaðar og
Churchill kom út með stórt hand-
klæði vafið utan um sig; raunar
voru þetta tvö handklæði, sem
saumuð höfðu verið saman. Ég
heyrði að hann gekk aftur til svefn-
herbergisins.
Þá var ég alltaf vanur að ná í
fötin hans, en þetta var í fyrsta sinn,
sem ég hjálpaði honum ekki —•
mundi hann nú komast af án mín?
Næsta morgun sagði hann, að það
væri gott að ég væri kominn á fæt-
ur. Daglöng hvíld í rúminu nægði
til þess að ég var orðinn hress, en
ég hafði sannarlega verið hvíldar-
innar þurfandi, því að vinnudagur
minn byrjaði venjulega klukkan
átta á morgnana og stóð til klukk-
an 4 á næturnar!
Vinnudagur Churchills frá þvi
hann fór í bað á morgnana, og þar
til hann gekk til sængur á næturn-
ar var óslitin röð af viðburðum og
annríki — en ekkert virtist bíta á
hann.
Dagurinn hófst með því, að ég
læddist inn í herbergið hans klukk-
an 8.30 á morgnana og hnippti var-
færnislega við honum. Svo dró ég