Úrval - 01.09.1971, Page 71
DÁSEMDIR KANADÍSKU ÞJÓÐGARÐANNA
69
Fossinn TakaJckaw er þriöji hœsti foss í Norður-Ameríku. Hann er í Yolio
þjóSgarðinum.
myndara og málara, og er það engin
furða. Viktoríufjall gnæfir rúm
11.000 fet í baksýn, krýnt Viktoríu-
jökli, sem teygir anga sína niður
hlíðar þess og í kringum Lefroyfj all.
Fjöllin endurspeglast skýrt í túrkis-
bláu vatninu. Þetta er unaðsfögur
sýn og síbreytileg.
Vatn þetta var í heiðursskyni gefið
nafn Louise prinsessu, dóttur Vikt-
oríu drottningar og eiginkonu mark-
greifans af Lorne (ríkisstjóra Kan-
ada frá 1878 til 1883. Louisevatn er
ógleymanlegt hlið að dásemdum
fjallanna. Það tekur til dæmis að-
eins dag að fara í ferðalag til nær-
liggjandi Yohoþjóðgarðs (Yoho
merkir „hversu dásamlegt" á Indí-
ánamáli) til þess að skoða hina
stórkostlegu Takakkawfossa. Upp-
tök fljótsins, sem fossar þessir eru
í, er jökull, sem fer stöðugt minnk-
andi. Það er ekki hægt að sjá hann
frá þjóðveginunm, og fossinn virð-
ist því steypast niður úr himninum,
þar sem hann fellur 1250 fet í beinu
falli fram af brún Yohodalsins.
Annan dag fórum við yfir vatna-
skilasvæði Klettafj allanna yfir í
Kootenayþjóðgarðinn. Eftir að hafa
ekið eftir sígrænum dölum og gjám
með rauðum hamraveggjum, hvíld-