Úrval - 01.12.1973, Qupperneq 20
18
ÚRVAL
verndarsvæða, sem er árangur
heimsbaráttu Alþjóðasambands
Náttúruverndar og World Wildlife
Fund. En þar til þessi eðlilegu
verndarsvæði verða varin enn frek
ar gegn ásælni mannsins, liggur
síðasta von fjölda annarra dýra-
tegunda í lítt þekktri „krossferðar-
björgun" — frjóvgun fangaðra dýra
í stærstu dýragörðum heims.
Viðkoma fangaðra dýra er þó
tvísýnt fyrirtæki, flókið vegna lík-
amlegra, félagslegra og sálrænna
þarfa hverrar einstakrar tegund-
ar. Vel heppnaður getnaður hefur
oft ónýtzt vegna fæðinga fyrir tím-
ann og dauða vegna skorts á móð-
urást, beinu drápi og sjúkdóma.
Hugleiðið hve skammt er síðan
þessar erfiðu dýragarða-tilraunir
sáu dagsins ljós: Dala-górillan (í
Colombus, Ohio) árið 1956 og Chita
(í Tierpark Krefeld, Þýzkalandi)
árið 1960. Eftir óteljandi mistök
hafa dýragarðarnir lært nokkur
frumskilyrði velheppnaðrar frjóvg
unar.
FORGANGSMÖKUN
Samvist karl- og kvendýra -
eins óútreiknanlegt og meðal manna
•—• er algjör nauðsyn tegundum eins
og t. d. mannapa og flestra katta-
tegunda. Jagúarnir eru svo furðu-
legir, að þeir ráðast með klónum á
sum kvendýrin, en sýna svo með
blíðuhótum augljósa ástúð sína.
235 kg górilla, sem kölluð er Babe,
hrakti hvað eftir annað kvendýr
frá sér, á svo hrottalegan hátt, að
hann var afskrifaður sem „dráp-
ari“. Þá fékk hann nýfangað kven-
dýr í næsta búr við sig. Babe sýndi,
i§m|§§
Hvítabirnir, móðir og húnar.
frá fyrstu sýn, mikinn áhuga á nýja
nágrannanum og þegar þau voru
sameinuð varð hann, öllum til undr
unar, ákaflega ljúfur félagi.
Þó að dýragarðar hafi náð til sín
hundruðum órangútanapa á þessari
öld, hefur fjöldi þeirra drepizt úr
beinkröm og öðrum sjúkdómum og
aðeins sex fæðingar heppnuðust ár-
ið 1964. Síðan þá hefur aukið fjár-
magn í fæðu þeirra orsakað greini-
lega afkvæmaaukningu Órangútan-
apar krefjast þess þó að velja maka
sína sjálfir. Við Þjóðardýragarðinn
í Washington vísaði risastór óran-
gútan, kallur Buch, með fyrirlitn-
ingu á bug hverju kvendýrinu á
fætur öðru. „Að lokum fluttum við
Buch til Cheyenne-fjalladýragarðs-
ins í Colorado og hann steinlá,
þegar í stað, fyrir nýju kvenapa-
andliti, tilkynnti William Xanten
forstöðumaður. „Og síðan hefur
hann hlaðið niður afkvæmum. Á
meðan fengum við Archi, frá Tor-