Úrval - 01.12.1973, Page 94
92
ÚRVAL
sjúkdóminn á sjötugsaldri — er
hann algengastur á árabilinu 21 til
45, svo og meðal hvítvoðunga. Með-
al hinna síðasttöldu læknast yfir
helmingur tilfella algerlega í
bernsku.
Beztu læknisráðin eru að finna í
nægri hvíld, reglulegum, léttum lík
amsæfingum, heitum bökstrum og
lyfjum. Um sextán ára aldur hafa
70 hundraðshlutar hinna yngri
sjúklinga algerlega losnað við kvill-
ann.
Þrátt fyrir víðtækar rannsóknir,
eru orsakir liðagiktar enn hulinn
leyndardómur. Til skamms tíma
hefur læknismeðferðin verið bund-
in við fáein lyf, sem draga úr verkj
um og bólgum. En það var tilvilj-
unum háð, hvort nokkur lækning
náðist með tilstilli þessara lyfja.
En nú hefur orðið breyting á.
„Þótt eigi sé til nein töfralækn-
ing við liðagikt,“ segir einn sér-
fræðingurinn, „þá er ekkert tilfelli
alserlega vonlaust. Með bví að taka
sjúldinginn snemma til meðferðar
og gefa honum eitt eða fleiri lyf
er unnt að draga úr verstu afleið-
ingunum. En færist sjúkdómurinn
mjög í aukana eru á boðstólum ný
lyf, sem lofa góðu. Þar að auki
hefur handlækningatækni farið svo
fram á síðustu árum, að oft má
gera við bæklanir og koma í veg
fyrir vanlíðan."
Tökum til dæmis Donnu Comp-
ton, sem var aðstoðarstúlka hjá
tannlækni. Tuttugu og eins árs göm
ul tók hún að finna fvrir verkjum
víðs vegar um líkamann ásamt
stirðleika, og bar mest á því á
morgnana. Fyrst í stað taldi hún
þetta vera langvarandi inflúensutil-
felli. En þegar fingurhnúarnir
bólgnuðu og urðu óeðlilega heitir,
vissi hún, að tími væri komin til
að ræða við lækni.
Læknir Donnu ráðlagði lyf, stóra
skammta af aspiríni, og síðar ann-
að lyf til að draga úr bólgum —
en þetta dugði ei til að stöðva sjúk-
leikann. Innan sex ára varð Donna
að hætta störfum sínum, því fing-
ur hennar voru orðnir svo illa farn-
ir, að hún gat ekki handleikið rétti-
lega áhöld tannlæknisins.
Læknir hennar ráðlagði þá skurð
aðgerð, en í heiminum eru nú yfir
300 handlæknar á 200 sjúkrahúsum,
sem fást reglulega við slíkar að-
gerðir. Og í flestum tilfellum hafa
þær heppnazt vel.
Donna samþykkti að gangast
undir aðgerðina, bvi þetta var henn
ar fvrsta von árum saman. Og á
svölum morgni í apríl síðastliðnum
fylgdist ég með Swanson skurð-
lækni gera við fingur Donnu. Fimm
dögum eftir aðgerðina var hún byrj
uð að hreyfa fingurna eðlileffar en
hún hafði gert árum saman.
O—O
Sé mjaðmaliðurinn siúkur vegn"
liðagiktar, er róttæk aðgerð mögu-
leg; skipti á mjaðmarliðnum fyrir
annan tilbúinn af mannahöndum.
Þúsundir manna hafa gengizt und-
ir þess konar aðgerð.
Önnur læknisaðgerð er að fia”-
lægja bólginn vef frá liðamótum,
áður en sjúkdómurinn nær til beina
og sina. Ný, mikilvirk lyf hafa
komið fram á sjónarsviðið, og eru
sum enn á tilraunastigi.
Flestir fræðimenn telja, að liða-