Úrval - 01.12.1973, Blaðsíða 57
ER UNNT AÐ HAFA HEMIL . . . ?
55
Stjórnmál.
Fjölskylduáætlunum og takmörk
un. barnsfæðinga er oft blandað
saman við stjórnmáladeilur bæði til
hægri og vinstri. Kommúnistar
fullyrða, að fjölskyldutakmarkanir
séu svikamylla kapitalista og heims
veldastefna. íhaldsöflin telja fólks-
fjölgun aftur á móti öruggasta ráð
eflingar sjálfstæðis og valda.
Trúarbrögff.
Andstaða rómversk-kaþólsku
kirkjunnar gegn fæðingatakmörk-
unum er nokkuð á flökti eins og
frjálslyndi yngri presta. Kirkjan
virðist hafa miklu meiri áhrif á
ríkisstjórnir, heldur en einstaklinga
á þessu sviði. „Foreldrar óttast
biskupa" er haft eftir einum for-
ingja í Heimssamtökum gegn of-
fjölgun IPPF, sem sagði: Prestur-
inn sinnir sálinni, en læknirinn lik
amanum. Hér á því læknirinn að
ráða.
Aukin heilsugát.
Baráttan gegn dauðanum hefur
orðið miklu áhrifameiri í vanþró-
uðu löndunum en fæðingatakmörk
un. Framfarir í lækningum og
lyfjafræði hafa lengt meðalævi í
þessum löndum um 10—15 ár síðan
í annarri heimsstyriöldinni.
Stjórnun.
Skortur á getnaðarvörnum og
æfðu starfsliði hefur gert erfitt um
vik á allan hátt um framkvæmdir
gegn fólksfjölgun og alla þjónustu
við fjöldann á þessu sviði.
Á Filippseyjum var t. d. hálf
milljón af pillupökkum sett til
geymslu í vöruhúsi fyrir tízkuvarn-
ing í sex mánuði, áður en tókst að
leysa sendinguna út.
Lyfjasendingar og hjálpargögn,
svo ekki sé talað um fræðslu og
opinbera þjónustu, ná varla til
sveitafólks og fjarlægra héraða enn
þann dag í dag.
Venjur og vanþekking.
Getnaðarvarnir, fæðingatakmörk
un og fjölskylduáætlanir yfirleitt
mæta margs konar viðkvæmum
venjum og alls konar banni og hjá-
trú í aldarfornum þjóðarsiðum og
átrúnaði.
Allt verður sem opin kvika, við-
kvæmt gagnvart mistökum og mis-
skilningi. Alls konar bábiljur og
hjátrú mæta málefninu.
„Það getur enginn gert sér í hug-
arlund það hyldýpi vanþekkingar
og fordóma gagnvart fæðingatak-
mörkunum, sem þetta fólk er hald-
ið af,“ segir Philander P. Claxton,
einn af sérfræðingum í málefnum
gegn mannfjölgun.
Hornsteinn bjartsýni.
Þrátt fyrir alla þessa örðugleika,
eru flestir, sem að þessu vinna,
sannfærðir um árangur, ef ekki al-
gjöran sigur í baráttunni við mann
fjölgunarsprengjuna. Grundvöllur
þeirrar bjartsýni er sá, að flest hjón
um víða veröld vilja í raun og veru
takmarka barnafjöldann.
„Satt að segja veit ég ekki, hvern
ig á því stendur, að beztu ráðin
gegn offjölgun hvarvetna í heim-
inum eru lítt eða ekki notuð,“ seg-
ir dr. R. T. Ravenholt, einn af for-
stjórum fæðingatakmarkana. Ýmiss