Úrval - 01.12.1973, Síða 27
VARIÐ YKKUR Á VASAÞJÓFUNUM!
25
ur sér helzt til mikið neðan í því.
Þessa „góðlátlegu“ manntegund
geturðu séð fyrir utan drykkjar-
krár eða þar innan veggja, áfjáðan
í að „hjálpa“ þeiri, sem hann hef-
ur augastað á, inn í leigubíl eða
yfir götuna. en á meðan notar hann
tækifærið til að fjarlægja það, sem
hann kann að hafa fémætt í vösum
eða töskum.
Þriðja tegund vasaþjófa er sú,
sem sérhæfir sig í að komast í hand-
töskur kvenna og hirða peninga-
veski, sem þar kunna að vera
geymd. Þjófar þessir halda sig þar,
sem konur eru líklegar til að láta
frá sér töskur sínar án þess að
hafa auga með þeim. Til að mynda
sækjast menn þessir eftir að fá
sæti í leikhúsum eða bíóum næst
fyrir aftan konu, sem lagt hefur
frá sér tösku sína í næsta sæti.
Taskan fellur á gólfið, maðurinn
tekur hana upp og réttir konunni
kurteislega — effir að hafa fiar-
^æst úr henni peningaveskið.
Loks er bað ,.nuðarinn“, sem leit-
ast við að trufla þig eða koma þér
í óþægilega aðstöðu, oft með því
að ryðjast upp að þér í flugvél,
strætisvagni eða járnbrautarlest og
blása fúlujm anda framan í þig
meðan hann með annarri hendinni
laumast í hliðarvasann. Ellegar
hann „af slysni" hellir einhveriu
á frakkann þinn. Meðan hann af-
sakar sig auðmiúklega og þurrkar
blettinn, losar hann þig lipurlega
við veskið þitt.
Gevmdu veskið þit.t. í hnepntum
innanverðum brjóstvasa, ef þú get-
ur. Að sjálfsögðu er viss vörn í því
að hafa vasann lokaðan, og í öðru
lagi er þjófunum illa við að koma
framan að mönnum, — eða „kyssa
hundinn“, eins og þeir kalla það á
fagmáli sínu.
Vertu ævinlega á verði, þegar þú
ert innan um mannfjölda. Þreifaðu
þá annað veifið eftir veskinu þínu,
sérstaklega ef einhver rekst á þig.
Vertu ekki hrædd(ur) við að láta
í þér heyra eða æpa upp, verðirðu
var við, að einhver vilji grípa veski
þitt eða tösku. Undir þeim kring-
umstæðum þykir flestum vasaþjóf-
um hyggilegast að flýja af hólmi.
Konum er ráðlegast að halda á
handtösku sinni sem næst sér, sízt
af öllu að hafa þær í axlaról (hlið-
artöskur). Þegar setið er í leikhús-
um eða slíkum stöðum, er öruggast
að hafa töskurnar i kjöltu sér. Al-
drei skvldi skilja við tösku án þess
að hafa auga með henni.
Sá, sem glatar viðskiptakorti
(credit-card), skyldi undir eins til-
kvnna um það til réttra aðila. Þeir,
sem stela slíkum kortum, eru fljót-
ir að taka út á þau. Láttu ekki
blekkjast á upphringingum til gisti
staðar þíns eða heimilis, þar sem
sagt er, að einhver hafi fundið við-
skiptakortið þitt og ætli að senda
þér það í pósti. Þetta er bragð, sem
þjófar beita oft til að skapa sér
lengri tíma til að notfæra sér kort-
ið til innkaupa.
Og síðast en ekki sízt:
Berðu ekki á þér öllu meira fé
en þú þarfnast í það og það skipt-
ið. Og ekki veifa peningaseðlum
þínum framan í hvern sem er.
Þjófóttur náungi getur hæglega
bundið enda á skemmtiferðalag eða