Úrval - 01.12.1973, Page 102

Úrval - 01.12.1973, Page 102
100 hvítra húsa, sem standa umhverfis grænan flöt, en þeir eru eins og ósar hvarvetna í London. Hann tók við yfirhöfn minni og vísaði mér til setustofu í Edwards-stíl. A einum veggnum var mynd af móð- ur hans og á öðrum myndir af föð- ur hans og afa. Kvöldverðurinn beið á gljáfægðu mahogniborði, og borðbúnaðurinn var úr ensku silfri. Að máltíðinni lokinni lá leiðin inn í bílinn hans, og Pat spurði ekki, hvað ég æskti eftir að sjá, heldur ók að horninu, þar sem „The Globe Theatre", leikhús Shape- speare, var einu sinni til húsa. Nú var þarna átöppunarverk- smiðja. Úg fékk hann til að stöðva bílinn, brá mér út og virti fyrir mér staðinn og fannst, að höfuðið á mér ætlaði að springa. Hann ók mér næst til kráar einn- ar, sem nefndist „The George“, og um leið og hann lauk upp fyrir mér dyrunum, mælti hann sinni léttu, hlutlausu röddu: „Shake- speare vandi komur sinar hingað.“ Þarna voru þá dyr, sem Shake- speare hafði gengið um, eins og ég nú, og krá, sem hann þekkti. Við settumst við borð, og ég hallaði höfðinu að vegg, sem Shakespeare hafði einu sinni snert, og þetta er ólýsanlegt. Það var margt um manninn í kránni. Fólk stóð við barinn, og öll borð upptekin. Allt í einu fór í taugarnar á mér að horfa upp á alla þessa sljóu smáborgara éta og drekka án þess að gera sér grein fyrir, hvar þeir voru staddir, og því hálfvegis hreytti ég út úr mér: „Ef Shakespeare gengi nú hér inn, ÚRVAL mundi það sjálfsagt ekki vera til að heilsa upp á fólkið!" Um leið og ég sleppti síðasta orð- inu fann ég, að ég hafði rangt fyrir mér. Hann svaraði áður en ég gat leiðrétt mig: „Oh, nei. Fólkið er alveg eins og á hans dögum.“ Auðvitað var fólkið eins. Þegar ég leit yfir hópinn aftur, sá ég hinn ljóshærða og skeggjaða Shol- low dómara rabba við barþjóninn. Lengra inn með barnum var Bott- om vefari að lýsa sínum miklu erf- iðleikum fyrir Bardolph með andlitsdrættina. Og við borðið næst okkur sat hin léttlynda Quickly, klædd í rósóttan kjól og með hvít- an áberandi hatt, og hló dátt. Pat tókst að vekj'a mig til raun- veruleikans á ný og ók til „The Tower of London", sem var stærri og hrikalegri smíð en ég hafði ímyndað mér. Pat sá svo til, að við værum þarna klukkan tuttugu mín útur fyrir tíu, svo ég gæti séð varð- liðið loka turn-hliðunum. Einkenn- isbúningarnir eru í glossalegum, bláum og skarlatsrauðum litum, en harðneskjulegur er samt svipurinn yfir þessari athöfn, þegar fangels- inu er lokað í kvölddimmunni. Þegar gengið hafði verið tryggi- lega frá hliðunum, þrammaði varð- liðið á ný til hinnar stóru tréhurð- ar. Eftir að hafa farið þar í gegn og hurðin smollin í lás, heyrði ég rödd segja léttilega við hlið mér: „Þeir hafa ekki sleppt úr kvöldi í sjö hundruð ár.“ Hugurinn komst á reik. Þótt ekki sé horfið lengra en fimm aldir aftur í tímann, sér maður London á um- brotatímum Cromwells, Pláguna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.