Úrval - 01.10.1978, Blaðsíða 10
8 ÚRVAL
Uppgötvanir könnuða snúa hugmyndum okkarum dýrin
gersamlega við.
DÝRIN ERU ÖÐRU VÍSI
EN VEÐ HÖLDUM
— Jack Denton Scott —
A
LLIR vita að ljónið —
konungur dýranna og
tákn konungs veldisins
%$£>&£>% — er öðrum dýrum dug-
legra að veiða, óttalaus
verndari hjarðar sinnar og unga. Og
við trúum því statt og stöðugt, að hin
raga hýena, sem lúskrar um í skjóli
næturinnar, sé andstyggðar óört, sem
eingöngu dragi fram líflð með því að
éta hræ og leifarnar af veiðikrásum
hugaðri rándýra.
Á sama hátt er úlfurinn grimm
skepna, sem stundum étur fólk, gór-
illuapinn skelfllegur King Kong,
krókódíllinn er morðóð ófreskja.
Ennfremur eru margir okkar þeirrar
skoðunar, að meðal villidýra gildi þau
óskráðu lög, að engin tegund drepi
dýr sömu tegundar, og að maðurinn
sé eina skepna jarðarinnar, sem af
yfírlögðu ráði vegi meðbræður sína.
Megnið af þessum ,,fróðleik” er
rangur og miklu fremur sprottinn af
hugmyndaflugi mannanna en raun-
verulegri þekkingu. Við mennirnir
höfum haft tilhneigingu til þess að
skipta dýrunum í góð dýr og slæm dýr
og eigna þeim mannlega eiginleika,
gildi og forsendur. Á þessu er nú
ráðin bót í nýrri, skemmtilegri og
fræðandi bók, ,,The Cult and the
Wild”, eftir Boyce Rensberger, sem
gerir tvenntí senn: Vísar ímyndunum