Úrval - 01.10.1978, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
skipuðu ráðgjafahlutverki sínu sem
gamalreyndur stjórnandi. Það var
ekki annað að sjá af lífsþróttinum, en
helmingi yngri maður væri á ferð,
þegar hann heimsótti Rússland,
Indland, Miðameríku og Egyptaland,
Kína tvívegis og Suðurafríku sex sinn-
um. En hann gætti alltaf að
vera kominn heim til London til að
geta tekið þátt 1 hinum árlegu E1
Alamein háríðahöldum. Á þessum
fagnaði fyrrverandi eyðimerkur-
hermanna var hápunkturinn
ævinlega sú stund, þegar yfirmaður
8. herdeildarinnar gekk í salinn.
Á síðustu utanlandsreisu sinni árið
1967 sneri hann aftur til vígvallarins í
Norðurafríku. Denis Hamilton, vinur
hans, minnist þess hve Monty var
hljóður, þegar þeir gegnu saman um
stríðskirkjugarðinn við E1 Alamein,
þar sem 20 þúsund breskir
eyðimerkurhermenn eru grafnir.
„Þegar ég spurði hann, hvort hann
langaði til að heimsækja þýsku og
ítölsku stríðskirkjugarðana í
nágrenninu, svaraði hann: ,,Ég hef
drapið svo marga menn, að ég þarf
ekki að sjá grafir þeirra til að muna
það.”
Eftir þessa eyðimerkurheimsókn
kom 79 ára gömul stríðskempan ekki
fram opinberlega framar. Ári seinna
fékk hann bréf frá litlum drengsnáða:
,,Kæri Sir Bernard, ég hélt þú værir
dauður. En pabbi segir, að þú sért
ennþá lifandi, en deyir bráðum.
Flýttu þér að senda mér eiginhandar-
áritun þína, áður en þú deyrð.”
Monty varð við ósk drengsins undir
eins og sagði seinna: ,,Mér fannst
drengurinn taka ákaflega skynsam-
legaafstöðu.”
Síðustu árin lifði hann 1 endur-
minningum sínum. Sóknarpresturinn
David Dewing í nágrannabænum
Binsted segir: ,,Þótt hann gæti ekki
fylgt fötum, var hann fullkomlega
heilbrigður andlega. Rétt fyrir jól
1975 sagði hann við mig: Þegar ég
dey, vil ég ekki verða settur í eitthvert
grafhýsið í London. Heldurðu ekki að
þú getir fundið mér reit í kirkju-
g árðinum þínum? ’ ’
Hann hlaut hægt andlát 24. mars
1976. Yfir jarðarför hans þmmuðu 19
fallbyssuskot frá Windsorhöll, en sex
hershöfðingjar og heryfírmenn frá 39
þjóðum fylgdu fallbyssuvagninum,
sem flutti kism hans til kapellu
heilags Georgs. Svarta alpahúfan lá
ofan á kistunni. Seinna þennan sama
dag var Montgomery greifi lagður til
hinsm hvíldar undir risastórum ýviði í
kyrrlátum kirkjugarði Binsted.
Síðan þá hefur sóknarnefndin
orðið að leggja fram nýja gestabók sex
sinnum t litlu kirkjunni. Hver bók er
fljót að fyllast nöfnum þeirra tug
þúsunda, sem koma hvaðanæva úr
heiminum til að hylla og minnast
þess manns, sem skipti svo mikíu
máli fyrir svo marga.
★
# * &