Úrval - 01.10.1978, Blaðsíða 104
102
ÚRVAL
húss heilagrar Klöru í Denville í New
Jersey, sem var betur búið til
rannsókna. Þar lenti hún í umsjá
Robert Morse, sérfræðings í
rannsóknum og taugalækningum, og
Ashad Javed, sérfræðings í öndunar-
færa sjúkdómum. Julia gat ekki betur
séð en Karen yrði þegar í stað
miðpunktur allrar starfsemi spítalans.
Við Joe vorum beðin að undir-
rita eitt plaggið eftir annað, veita
leyfi til allskonar nýrra rann-
sóknar. Sjúkraþjálfar komu
daglega og reyndu að rétta hand-
ieggi Karenar og fætur, sem
virtust herpast upp að líkama
hennar. Kné hennar og olnbogar
beygðust inn á við og voru að
verða óhreyfanleg. Handleggirnir
og fæturnir voru bundnir við
fjalir, líkt og spelkur, til að reyna
að rétta úr liðunum. En hvað sem
gert var, herptust limimir jafn
óðum aftur, og úlnliðirnir, sem
sveigðust á sérkennilegan og óeðli-
legan hátt, leituðu stöðugt upp að
höku.
Dagarnir liðu, og Karen var sífellt í
dái. Snemma í maí hafði höfuð
Karenar herpst svo fram á við, að
hakan nam við loftslönguna, sem lá
inn í barkann, Handleggirnir kross-
lögðust og hnén lyftust upp. Juliu
fannst líkami Karenar ósjálfrátt leita í
fósturstellingu.
Svo, allt í einu, breyttist afstaða
höfuðsins. Það keyrðist
aftur á bak, svo hnakkinn
pressaðist ofan á milli herða-
blaðanna. Ég lagði kodda undir
hana meðan hún var sofandi til að
reyna að færa höfuðið í eðlilega
stellingu. En þegar hún var
vakandi, var ekkert hægt að gera.
Höfuð hennar var á sífelldri hreyf-
ingu, og gretta færðist á andlitið.
Það var skelfilegt að sjá þetta.
Stundum galopnaðist munnur
hennar, eins og hún væri að reyna
að æpa, en ekkert heyrðist aema
stöku, lágværar stunur, líkt og
uml. Þetta var það erfiðasta, því
okkur fannst hún hljóta að finna
svo til. Morse læknir sagði aftur á
móti, að hún hefði engar þrautir, í
venjulegum skilningi. Maður
fínnur ekki til, sagði hann, ef
heilinn getur ekki skynjað sárs-
auka. Góði guð, hugsaði ég, ef
heili Karenar er svona langt
leiddur, hvers vegna er þá svona
mikið gert til að vekja hana til
lífsins?
Mér er sama hvað maður reynir
að vera rökvís og tæknilegur og
læknavísindalegur í hugsun. Það
er alltaf jafn skelfilegt að sjá
dóttur sínas líða svona og standa
hjálparvana hjá.
Meðan allt lék í lyndi höfðu þær
Karen rætt um vini og ættingja, sem
lífinu var haldið í með tæknitækjum
einum saman, og Karen hafði látið í
ljósi andstyggð á þvílíkri tæknitóru.