Mímir - 01.06.2005, Side 27

Mímir - 01.06.2005, Side 27
og hlutu að launum gjaldeyri til að kaupa þjóðina út úr hokri og vesöld næstu 1000 ára á undan. Hórdómur þjóðarinnar er tvenns konar, eiginlegt vændi tíðkaðist í miklu mæli hjá ástandsstúlkunum og svo má segja að undirlægjuháttur þjóðarinnar gagnvart hersetuliðunum sé einhvers konar hór, en að stríðinu loknu fékk þjóðin þrælslundina greidda í svokallaðri Marshallaðstoð.14 Það má hafa til marks um hvað Megas er ávallt tilbúinn til að fara gegn straumnum að hann lætur sér ekki nægja að yrkja um og í orðastað ástandskvenna. Hann tekur líka fyrir mest áberandi kventegund næstu kynslóðar, rauðsokkuna. Konan, sem lifði á líkama sínum í stríðinu og í kjölfar þess, hefur snúið við blaðinu. Fyrsta kynslóðin á mölinni, sú sem mammaboba starfrækti verður í endurgerð sinni örfáum áratugum síðar að rauðsokkum og fer að berjast fyrir réttindum kvenna. Þær hvetja aðrar konur til þess að fara út á vinnumarkaðinn, klæða sig í buxur og taka þátt í karlaveröldinni, þetta er líka þeirra veröld. í kjölfarið verða börnin meira og minna sjálfala, uppeldi þeirra gleymist og þau ráfa ein um glapstigu borgarinnar. Það er ekki nóg með að gildi andstæðra heima mætist heldur tekur borgin stakkaskiptum í kvæðum Megasar, það verður þjóðfélagsþróun. í laginu „Álafossúlpan" er mælandi textans að reyna að komast yfir kvenmenn og gengur það frekar snautlega. Markmið mælanda og erindi hans við stúlkurnar virðist aðeins vera eitt, sem glögglega má ráða af fyrsta erindinu: Ég hitti eina píu á Halló ég hélt ég fengi þar ballfró og ég höslaði henni inní bakarí en þegar ég hugðist svo fara að taka í þá öskraði hún: hættu þessu káfi eða ég klíp Vilji Ijóðmælanda er nokkuð skýr. Hann leitar eftir ballfró og beitirtil þess ýmsum leiðum. í hverju erindi er sagt frá nýrri tilraun en alltaf mistakast tilraunirnar og hver kvenmaðurinn á eftir öðrum hótar að klípa strákgreyið. Allar þessar stúlkur eiga ýmislegt sameiginlegt, eins og segir í viðlaginu sem er sungið á eftir hverju erindi: og hún var í Álafossúlpu algjört kríp því þetta var legremburotta með rykfallinn snip 14 Marshallaðstoðin var efnahagsaðstoð Bandaríkjamanna til handa 16 ríkjum í V-Evrópu á árunum 1948-53 til að byggja upp efnahag ríkjanna eftir síðari heimsstyrjöld. Ríkin skyldu hafa samvinnu við Bandaríkin um uppbygginguna. íslendingar hlutu tæpar 40 milljónir dollara, hlutfallslega mest af ríkjunum 16 ef miðað er við höfðatölu. (Sigurður Snævarr, 1997). Ástandsmellan er komin í Álafossúlpu, íslenska framleiðslu sem var mikil tískuflík á þeim árum sem kvenréttindabaráttu fór að vaxa ásmegin. Rétt eins og áður þykist hún eiga sig sjálf, en þrátt fyrir að enginn starfræki hana með beinum fjárframlögum fylgir hún ákveðnum staðli. „Alþýðlegan" klæðaburð sinn og háleitar hugmyndir um sjálfstæði konunnar á hún sameiginlegar með fjölmörgum öðrum af sinni kynslóð. Hún verður því algjör andstæða fyrirrennara síns, hefur enga þörf fyrir hitt kynið og bolar frá sér öllum karlmönnum sem koma nálægt henni. Megas býr hér til nýtt orð, legremburotta sem er augljóslega kvenkyns útgáfa af karlrembusvíni. Hún er kvenréttindakona sem vill ekkert með karlmenn hafa. í stað rykfallins höfuðs feðraveldisins, í rykfrakkanum og með stresstöskuna eru komnir kvenmenn sem fara með öfgarnar í hina áttina. Enda rykfalla þær líka, á sinn hátt. 5. Loftmynd (Sveitin og borgin) Þrátt fyrir að „fyrsti íslendingurinn" og „fyrsti Reykvíkingurinn" hafi verið einn og sami maðurinn, Ingólfur Arnarson, fór ekki að myndast vísir að borg hér fyrr en löngu eftir hans dag. Það var Skúli fógeti sem fyrstur manna reyndi að byggja upp einhverjar forsendur fyrir borgarbyggð á íslandi. Megas rifjar þetta upp í tveimur textum á Loftmynd. Texti nefndur eftir fógetanum segir frá því þegar Skúli „skaut skelk í bringu danskra kaupahéðna", hófst handa við að skapa forsendur fyrir því að draga þjóðina út úr moldarbyrgjunum og inn í mannabústaði þar sem hugsanlega væri hægt að nærast á einhverju öðru en „mold og muru freðinni". Uppátæki sitt kallaði hann Innréttingarnar og Ijóðmælandi getur sér þess til að Skúli hafi verið eitthvað í glasi „þegar hann glettur þessar vann“. Upp úr krafsinu hafði hann þó viðurnefnið faðir Reykjavíkur, þó reyndar sé óvíst hver móðirin er. í seinni textanum á Loftmynd þar sem þetta mál er reifað veltir Ijóðmælandi aftur á móti fyrir sér hver ábati íslands hafi svo verið af öllu stússinu, annar en „kláði í féð og fransós í lýðinn“. Borgarsollinum fylgdi ósóminn og feður til sveita eru varaðir við að senda saklausu litlu meybörnin sín á mölina. Svo virðist sem sakleysið í sveitasælunni geti hugsanlega verið að taka enda með uppgangi borgarbyggðar á íslandi. En var sveitin einhvern tíma friðsæl og saklaus? Hefur í mannabyggð nokkurn tíma ríkt fegurðin ein? í textanum um Orfeus og Evridísi er undirtónninn lífsleiði sem dauðinn einn getur bundið enda á. Svið kvæðisins er dalur. Þar ríkir kyrrð og friður, lífið gengur á yfirborðinu sinn vanagang, „sólin kemur upp í austri en í vestri sest hún niður“. í dalnum er ekkert nema brekkan, húsið sem stendur við hana, 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.