Mímir - 01.06.2005, Side 59

Mímir - 01.06.2005, Side 59
og Joan var miklu lægra í nýju setningagerðinni með geranda í forsetningarlið (sjá 4b. en í öðrum setningum með nýju setningagerðinni þar sem gerandi er ekki hafður með í forsetningarlið (sjá t.d. setninguna 4c. Til samanburðar voru venjulegar þolmyndarsetningar með geranda í forsetningarlið prófaðar (sjá setninguna 4a. Eins og við er að búast samþykkja málhafar geranda í forsetningarlið í slíkum setningum. Sigríði og Joan þótti að þetta þyrfti að kanna nánar og því voru nokkur lágmarkspör höfð með í minni athugun til að athuga þetta kerfisbundið. Aftur verður vikið að þessu atriði í niðurstöðum mínum í kafla 4.2.3 og það borið saman við þær niðurstöður sem ég fékk. Niðurstöður Sigríðar og Joan benda til, rétt eins og niðurstöður frumathugunarinnar, að þessi málbreyting sé lengra komin á landsbyggðinni en í Reykjavik. Munurinn á skólunum í Reykjavík vestan Elliðaáa og skólum í úthverfum Reykjavíkur og á landsbyggðinni var þó það mikill að fleiri þættir hljóta að spila þar inn í. Menntun foreldra virðist hafa áhrif á mat unglinga á nýju setningagerðinni. Hlutfall jákvæðra svara var lægra eftir því sem menntun foreldra var meiri í öllum landshlutum og var munurinn tölfræðilega marktækur. Sömu niðurstöður fékk Ásta Svavarsdóttir (1982) í könnun sinni á þágufallssýki, þ.e. þágufallssýki barna reyndist minni eftir því sem menntun foreldra var meiri. En þó að menntun foreldra í Reykjavík vestan Elliðaáa sé hlutfallslega meiri en menntun annarra foreldra á landinu skýrir það ekki að öllu leyti hvers vegna sá hópur unglinga sem býr á þessu svæði sker sig úr í notkun nýju setningagerðarinnar. Meðal þeirra unglinga í Reykjavík vestan Elliðaáa sem samþykkja síður nýju setningagerðina en unglingar annars staðar á landinu eru unglingar sem eiga foreldra með litla menntun. Hlutfall jákvæðra svara á þessu svæði er sem sagt lægra hjá öllum, óháð menntun foreldra. Það eru því augljóslega fleiri þættir en menntun foreldra sem spila þarna inn í. Sigríður Sigurjónsdóttir og Joan Maling (2001a, bls. 144-145) telja að námsárangur og hæfni til að taka próf geti verið einn af þessum þáttum því að á meðal skólanna í Reykjavík vestan Elliðaáa eru þeir skólar sem voru með hæsta meðaleinkunn á samræmdum prófum vorið 2000. 3.3 Könnun Stefaníu Björnsdóttur Stefanía Björnsdóttir skrifaði ritgerð í setningafræði-námskeiði hjá Jóhannesi Gísla Jónssyni aðjúnkt vorið 2002 þar sem hún lagði stuttan spurningalista um nýju setningagerðina fyrir 3., 5. og 7. bekk í skóla í Reykjavík sem staðsettur er vestan Elliðaáa. Stefanía notaði aðra aðferð í könnun sinni en notuð hefur verið í fyrri rannsóknum. Hver liður hófst á stuttri frásögn sem var aðdragandi að setningunum sem börnin áttu að merkja við. Á eftir hverri frásögn komu tvær setningar sem þau áttu að velja á milli, önnur í þolmynd en hin með nýju setningagerðinni. Helstu niðurstöður voru þær að u.þ.b. 25- 30% barna í þessum bekkjum valdi nýju setningagerðina. Ef þetta val endurspeglar notkun nýju setningagerðarinnar þá virðist notkunin vera mest hjá yngsta hópnum, u.þ.b. 36%, og minnst hjá elsta hópnum, u.þ.b. 17%. Þó kom fyrir í sumum setningum að fleiri völdu nýju setningagerðina í 5. bekk en 3. bekk. Munur á notkun nýju setningagerðarinnar eftir kynjum var lítill í 3. og 5. bekk en í 7. bekk virtust stelpur síður nota hana en strákar, þótt munurinn hafi ekki verið mikill. Þessi munur gæti stafað af því að stelpur fara frekar eftir leiðréttingum og fylgja reglum um rétt mál (Trudgill 1983, bls. 85-96). Niðurstöðurnar sýndu einnig að börnin nota bæði nýju setningagerðina og þolmynd. Sömu börn merktu við þolmynd í sumum dæmum en nýju setningagerðina í öðrum. Hlutfall þeirra sem notar nýju setningagerðina minnkar þó í réttu hlutfalli við aldur. Munurinn tengist e.t.v. því að börn verði meðvitaðri um að nýja setningagerðin er „rangt mál“ þegar þau eldast. 4. Niðurstöður athugunar 4.1 Framkvæmd athugunarinnar Ég lagði spurningalista fyrir 85 nemendur í fjórum bekkjum í tveim skólum, einn 7. og einn 9. bekk í hvorum skóla. Skólarnir tveir voru valdir með tilliti til þeirra niðurstaðna, sem komu fram í rannsókn Sigríðar og Joan, sem sýndu að skólar í Reykjavík vestan Elliðaáa höfðu lægra hlutfall jákvæðra svara en aðrir skólar á landinu. Þvi var valinn einn skóli í Reykjavík vestan Elliðaáa sem staðsettur er miðsvæðis í Reykjavík og einn skóli í Reykjavík austan Elliðaáa sem staðsettur er í Breiðholti, til þess að sjá hvort sami munur komi fram og í fyrri rannsókn. Til hagræðingar verða þessir skólar hér eftir nefndir skóli AE (austan Elliðaáa) og skóli VE (vestan Elliðaáa). Einnig voru 10 fullorðnir fengnir til að svara spumingalistanum til að hafa samanburð við unglingana. Spurningablaðið sem notað var í þessari athugun er hannað af Sigríði Sigurjónsdóttur og Joan Maling. Það er eins uppbyggt og spurningablaðið sem notað var í þeirra rannsókn. Á spurningablaðinu var 61 setning í handahófskenndri röð, þar af voru 10 viðmiðunarsetningar, tækar og ótækar, sem m.a. voru notaðar til að meta hvort svör nemendanna væru marktæk. Nemendurnir voru beðnir að merkja við einn af tveim möguleikum fyrir hverja setningu, líkt og í rannsókn Sigríðar og Joan, sjá dæmi (9) hér að framan. Þeir 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.