Mímir - 01.06.2005, Qupperneq 106
mannanna ásamt bræðrum sínum.29 Auk þess að
geta frá hásæti sínu, Hliðskjálfi í Valaskjálf, séð yfir
allan heiminn.30 í Snorra-Eddu er stigveldi guðanna
aðlagað að miklu leyti hinni kristnu hugmynd og
því kemur Óðinn fyrir sem hinn mikli Alfaðir, sem
veit allt, sér allt og skapaði heiminn. Þótt sum
eddukvæðanna, líkt og Völuspá, styðji þetta að
nokkru leyti, eru önnur sem leggja áherslu á annan
og dekkri hluta eðlis hans.
í Hárbarðsljóðum sennir Óðinn, í dulargervi, við
Þór og stríðir honum miskunnarlaust, en Þór svarar
fyrir sig, þrátt fyrir að vita ekki hver hinn dulbúni
er. Orðaskipti þeirra eru hefðbundin í sennum
og byggja á mismunandi aðstæðum hermanna
og þeirra sem heima sitja. Þeir fyrrnefndu lifa
hættulegu, þægindalausu lífi sem einkennist af
ferðalögum, ævintýrum og baráttu fyrir einhverju,
á meðan þeir síðarnefndu sitja heima, lausir við
hættu, hafa nóg að bíta og brenna, auk þess að
vera innan um kvenfólk, og þóttu þeir síðarnefndu
hafa óæðra hlutskipti.31
Óðinn snýr þessu í raun við og heldur því fram
að hans hlutskipti sé æðra og betra. Hann lýsir
kvennafari sínu og hvernig hann hefur náð sínu fram
í valdatafli með svikum og hlær að hreystiverkum
Þórs og gerir lítið úr þeim. Óðinn er enda guð
allra vetraríþrótta hermanna en Þór er fulltrúi
víkingaferða sumranna. Tvisvar nær Óðinn að særa
Þór með því að minnast á atburði sem Þór nefnir
ekki og nýtur þannig þeirra yfirburða að vita hver
Þór er, án þess að Þór viti hver leynist á bak við
nafnið Hárbarður. Fyrst nefnir Óðinn söguna um
hanska Skrýmis, þar sem Þór á að hafa skolfið af
hræðslu32 og síðan bendir hann honum á að Sif
eigi sér hó og réttara væri að hefna þess en að
rífast við gamlan mann.33 í bæði skiptin svarar Þór
með því að hefja vísu á orðunum Hárbarðr inn ragi
og eru það einu skiptin í kvæðinu sem hann sakar
Óðinn um ergi, sem virðist tákna það hugleysi að
Óðinn leikur þennan leik vitandi hver Þór er, en
án þess að segjatil sín. Leikurinn erekki leikinn
á jafnréttisgrundvelli og því reiðist Þór, en ekki
þeim svívirðingum sem Óðinn eys yfir hann vegna
atburða sem Þór segir sjálfur frá í sennunni.
Þó að ergi Óðins hafi verið fremur saklaus í
Hárbarðsljóðum, verða ásakanirnar alvarlegri f
Lokasennu og líkjast því sem ýjað var að í Ynglinga
sögu. Þegar Óðinn hefur í Lokasennu kallað Loka
argan og bent á að hann hafi borið börn neðan
jarðar, svarar Loki fyrir sig með þessari vísu:
29 Snorri Sturluson 1949, bls. 18-21.
30 Snorri Sturluson 1949, bls. 33.
31 Clover 2002, bls. 97-100.
32 Eddukvæði 1949, bls. 122.
33 Eddukvæði 1949, bls. 126.
104
Enn þik síða kóðu
Sámseyju í
ok draptu á vétt sem völur;
vitka líki
fórtu verþjóð yfir,
ok hugða ek þat args aðal.34
Þessari fullyrðingu tekst Óðni ekki að svara og ber
ekki gegn sannleiksgildi hennar og verður hún því
að teljast sönn. Þótt ekki sé vitað neitt um Sámsey
bendir margt til að ásakanir Loka séu réttar og að
Óðinn hafi verið sjaman og stundað seið.
í Snorra-Eddu er sagt frá hröfnum Óðins, sem heita
Huginn og Muninn. Þeir fljúga um allan heim og
segja Óðni svo frá öllu sem þeir sjá.35 Auk þess gat
Óðinn séð yfir allan heiminn úr Hliðskjálf. í Ynglinga
sögu segir ennfremur:
„Óðinn skipti hgmum. Lá þá búkrinn sem sofinn
eða dauðr, en hann var þá fugl eða dýr, fiskr
eða ormr ok fór á einni svipstund á fjarlæg Ignd
at sínum orendum eða annarra rnanna."36
Þessi lýsing bendirtil þess að Óðinn hafi verið
sjaman, en sjamanismi er trúarlegt fyrirbrigði sem
er upprunnið í norðaustanverðri Evrópu og víða í
Asíu og Ameríku, og er þekkt enn þann dag í dag.
Sjamanar gegna hlutverki sem líkist hlutverkum
presta og galdralækna og bjóða sjálfa sig fram sem
tengilið milli mannlegs samfélags og hins heimsins.
Til þess falla þeir í trans og sálir þeirra ferðast til
undirheima þar sem þeir öðlast visku frá guðunum
eða bjarga villtum sálum. Hlutverk sjamana var að
hluta til það sama og völva, þeir sögðu fyrir um
framtíðina, svöruðu fyrirspurnum um forlög og
fundu ástæður hörmunga og sjúkdóma.37
Samkvæmt Ellis Davidson er einkum tvennt
sem bendir til þess að Óðinn sé sjaman. í fyrsta
lagi þurfa sjamanar meðal eskimóa, indíána og
Síberíubúa að gangast undir táknrænan dauða
og endurfæðingu og vegna þeirra þjáninga sem
fylgja öðlast þeir þá visku sem til þarf. Þjáningin er
oft ímyndun framkölluð með hugleiðslu og þessar
þjáningarsýnir og endurfæðingin í kjölfar þeirra eru
oft tengdar heimstrénu. [ síðasta hluta Hávamála
lýsir Óðinn sjálfsfórn sinni til að öðlast þekkingu,
hann hékk níu nætur utan á tré, sem líklega er
norræna heimstréð Yggdrasill, og lærði rúnir. í öðru
lagi ferðast sjamanar ýmist á hestum eða fuglum
og Sleipnir, hinn áttfætti hestur Óðins gat hlaupið
í loftinu. Hrafnar Óðins, þeir Huginn og Muninn,
34 Eddukvæði 1949, bls. 150.
35 Snorri Sturluson 1949, bls. 57.
36 íslenzk fornrit XXVI 1979, bls. 18.
37 Ellis Davidson 1964, bls. 141-142.