Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 63
62
Múlaþing
Hver var Margrét Finnsdóttir á
Geirólfsstöðum?
Margrét Finnsdóttir var fædd á Geirólfs-
stöðum þann 9. júlí 1881 (www.islendinga-
bok.is). Hún var elst þeirra barna Finns og
Bergþóru, mjög vel gefin en missti heilsuna.
(Stefán Einarsson, 1950).
Nánast engar heimildir eru til um líf
hennar sem skýrist af veikindum hennar sem
komu fram þegar hún var á tvítugsaldri. Í
skriflegum heimildum um Bergþóru móður
hennar og Guðrúnu Helgu systur hennar er
víða vísað í veikindin hennar. Í bréfasafninu
er hægt að nálgast góðar upplýsingar um líf
Margrétar. Hún skrifaði sjálf bréf sem er vel
skrifað. Bréfið lýsir vel viðhorfum hennar
og samskiptum við fjölskylduna. Þar er um
að ræða glaða stúlku sem átti sér framtíðar-
drauma og var vel ritfær.
Hún var alin upp eins og Guðrún Helga
systir hennar í bókmenntasamfélagi og naut
góðs af því á unglingsárum. Því miður lá
aldrei fullkomin sjúkómsgreining fyrir þrátt
fyrir mikla læknisþjónustu. Það virðist þó
vera um einhverskonar hrörnunarsjúkdóm
að ræða þar sem heilsu hennar hrakaði smám
saman. Frænka Margrétar í Mýrdalnum skrifar
nokkur bréf þar sem greina má versnandi
heilsu hennar.
Ein nýleg heimild um líf hennar er í bók-
inni Skriðdæla (2013). Þar er um að ræða
dapra minningu um þessa ungu konu frá Geir-
ólfsstöðum í formi gamansögu. Það hefur
líklega verið vel meint á sínum tíma þar sem
góð vináttutengsl voru á milli Hryggstekkjar
og Geirólfsstaða eins og sést í kvæðinu hérna
á undan um Bergþóru. Sagan í Skriðdælu segir
frá Friðrik á Hryggstekk sem staddur var á
Arnhólsstöðum. Hann var spurður frétta og
segist ekki hafa markverðar fréttir. Hann kvað
þó að það hefði fækkað á Geirólfsstöðum. Í
sögunni kemur fram að Margrét lá þá þungt
haldin og að allir vissu af því. Vegna þess
hversu alvarlega hann sagði þetta þá áætluðu
heimilismenn að um Margréti hafi verið að
ræða. Ingibjörg á Hryggstekk sagði:
„Lof sé Guði að hún fékk hvíldina. Það
er gott að þeir fá hvíldina sem svo eru þjáðir
og litla von hafa um bata“.
Þá kom Friðrik inn sem leiðrétti misskiln-
inginn og hló í leiðinni. „Ég sagði aðeins að
það hefði fækkað á Geirólfsstöðum. Það var
rauða merin sem gaf upp öndina“.
Rauð hryssa hafði lengi verið að dragast
upp. Sérstaklega er nefnt í sögunni að það
hefði verið úr ófeiti og að Margrét hefði lifað
lengi eftir þetta en ekki fengið fulla heilsu.
Í þessu bréfasafni er hægt að nálgast
skemmtileg samskipti milli Helga bónda á
Geirólfsstöðum og Einars vinnumanns um
áhugamál þeirra, hrossarækt. Þar kemur fram
lýsing á rauðri hryssu sem tengist þessari
sögu. Dekrað var við þetta hross með ýmsum
hætti.
Margrét lést á Geirólfsstöðum sumarið
1943, líklega í júnímánuði. Heimilisfólkið
var að rýja féð niður við Grímsá þegar hún
lést3. Dánardagur hennar er hvorki skráður í
Íslendingabók né heldur á heimasíðu kirkju-
garðanna www.gardur.is.
Hver var Guðrún Helga Finns-
dóttir?
Guðrún var fædd á Geirólfsstöðum í Skriðdal
þann 6. dag febrúar mánaðar árið 1884. Voru
foreldrar hennar þau merkishjónin Finnur
F. Björnsson og Bergþóra Helgadóttir, er á
minnstum bæ bjuggu (Einar Páll Jónsson,
1950). Í bókinni Ferðalok (1950) lýsir Séra
E. J. Melan sveitabænum á eftirfarandi hátt:
„Þegar ég var unglingur kom ég eitt sinn
að Geirólfsstöðum. Það var á sunnudegi
um sumartíma. Þar bjuggu þá foreldrar
Guðrúnar. Þau tóku mér mjög vel og þar á
3 Óútgefin munnleg heimild: Guðrún Benedikta Helgadóttir
(2017).