Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Side 81

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Side 81
SSæll og blessaður, gleðileg jól og farsællt nýjár og þakk fyrir árið og bréfið. Ég vona að þú sért farinn að jafna þig, ef þú hefur ekki skrökvað um líðanina í dag. En þá er eðlilegt að þér batni ekki. Héðan eru fáar fréttir, við erum búnir að gefa inni í rúman mánuð um daginn en nú er búinn að vera langur kafli góður og hafa sumir sleppt en sumir ekki. Ég hef gefið talsvert mikið því ég ætla að reyna að fá tvílembdar í vor. Það marg borgar sig þó manni finnist lömbin smá á haustin þá getur maður þó verið státin yfir því að ekkert eitt er jafn þungt tveimum og 2 innlegg gera meira en eitt. Bara ef þau eru nógu feit og það verða þau með góðu fóðri seinni partinn. Það er sagt að sé seint að kenna gömlum hundi að sitja og líklega finnst þér skrýtið að ég skuli ætla að kenna að þér fjármennsku, en ég er nú bara að þessu vegna þess að þér er oft eða var illa við tvílembinga. Það er nú öðru nær að mér leiðist rollusögur því til sönnunar skal ég segja þér eina. Rétt fyrir snjóa í haust sá Siggi 3 veturgamlar ær sem hann átti, upp í svo nefndri Breiðuvík en hún er efsta rákin í Karlfelli sem er hér fyrir ofan bæinn og þú mannst kannski eftir. Fyrst framan af vonaðist maður eftir því að þær myndu koma sjálfar en svo demdi hann sjó ofan á snjó svo lítið varð af því. Svo fórum við Stefán þangað uppeftir í snjóabyrjun og ætluðum að reyna að hrekja þær niður með argi og grjótkasti en það tókst nú ekki, við komum þeim sama og ekkert. Síðan snjóaði og það vantaði fleiri kindur svo það var leitað annarslagið en ekki með of miklum dugnað því oft voru leitarmenn komnir heim skömmu eftir miðjan dag og fannst mér þeir latir að leita enda komust þeir aldrei nógu langt eins og seinna komst upp. Ég fór 3. sinnum og komst þó upp að vörpunum á þeim dögum sem ég fór en fann ekkert. Það voru margir að tala um að það myndi vera fennt (en því trúði ég ekki fyrir mína parta) svo kom rigningagusa og þýða í 2 daga en síðan frost og gangfæri (en þarna um dagana sem við Stefán fórum upp og að þessu, höfðu þessar 3 ær aldrei sjést en við hjéldum að þær myndu vera á líkum slóðum) Síðan fórum við 5 og átti nú að of reyna að síga eftir þeim ofaní rákina. það var hart upp hlíðar en spora snjór og góð færð þegar ofar dró og því gott að ganga þar sem tæpt var en svo lauk þessari för að ekkert fannst. Við létum Villa á Sævarenda síga niður og fór hann þangað sem ærnar sáust síðast en fann ekkert. Daginn á eftir fórum við aftur 4 og leituðum betur var Magnús í Húsavík með en hann er góður fjallgöngumaður en við sáum ekkert af því sem við leituðum af en við fundum þarna uppá fjallinu 2 dilkær eina í hvorri ferð sem við áttum alls ekki von á þarna og var búið aðleita dauðaleit af niðri í dölum. Varð það til þess að Bergur á Klippstað fór loksins nógu hátt inn í Norðdal og fann 4 ær hátt upp í brekkum. Enn þeim vantaði enn 3 ær og lamb og hafa ærnar verið að týnast að sú seinasta fyrir nokkrum dögum, ein og ein en lambið ókomið. En þetta var nú útúrdúr, daginn eftir fórum við Stefán upp í fjallið með kíkir og okkur tókst að koma auga á þær talsvert neðar en Bréf til Þorleifs Þórðarsonar Stakkahlíð jóladag 1946
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.