Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 111

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 111
110 Múlaþing Ritfregn Hofströnd Á árunum í kringum 1940 Útgefandi og höfundur: Sigmar Ingason. Útlit: Jón Oddur Guðmundsson Prentun: Litróf. Æskustöðvarnar verða mönnum löngum kærar og minnisstæðar, jafnvel þó æviárum sé eytt á fjarlægri slóð. Margir reyna að halda í minningarnar, sumir, kannski flestir, vilja skila minningum sínum til eftirlifandi kynslóða, ef þar skyldi leynast eitthvað sem eft- irkomendum skyldi vera til fróðleiks eða skemmtunar. Sigmar Ingason er fæddur árið 1930 og varð því níræður á því herrans ári 2020. Hann var uppalinn á Hofströnd í Borgarfirði eystra. Í bókinni, sem ber nafn bæjarins, rifjar hann upp hvernig þar var umhorfs á uppvaxtarárum sínum, árum sem óðum fyrnist nú yfir í lifandi vitund fólks. Meginefni bókarinnar og það merkasta helgar hann lýsingu á húsakosti að Hofströnd á árunum 1940–1945, sem mátti segja góðan á íslenska sveitavísu. Einnig segir hann frá fólkinu á bænum, fósturforeldrum sínum og öðru fólki sem þar lifði og starfaði, ættingjum og öðrum. Vinnubrögðin við búskapinn voru gamla tímans, hestar voru einu flutningatækin, útihús voru dreifð um tún til að auðvelda vetrarbeit. Örlítið var fengist við útgerð þar sem jörðin liggur að sjó, en bæjarhúsin voru nýrrar aldar. Gamli torfbærinn hafði fengið nýtt hlutverk og nýi tíminn var ekki langt undan. Sigmar er vel ritfær og lýsir vel þessum uppvaxtarárum, einkum umhverfinu og þó sér í lagi húsakynnum heimilisfólksins. Er lýsing hans sums staðar svo nákvæm að furðu gegnir að hann hafi geymt það í minni sínu í hartnær 80 ár. Reyndar segir hann að hann hafi fyrir alllöngu verið byrjaður á skráningunni, þannig hefur hann haldið til haga því sem hugsanlega væri með öllu gleymt í dag. Í bókinni eru glöggar grunnteikningar af bæjarhúsum sem sýna húsaskipan og einnig af inn- réttingum, svo sem hillum, skápum, rúmum, koffortum, tunnum fyrir súrmat og saltkjöt, og svo mætti lengi telja. Hægt er að fullyrða að óvíða sé að finna svo nákvæma lýsingu á innbúi í sveit á stríðsárunum eins og fram kemur í Hofstrandarbók Sigmars. Steinhúsið á Hofströnd var byggt 1904 og er því eitt af fyrstu steinhúsum sem byggt er í sveit hér austanlands. Þá bjó á Hofströnd Sigfús Gíslason og segir Sigmar nokkuð frá honum í bókinni. Sigfús sá hefur verið hörkuduglegur, hagsýnn og talsvert ráðríkur, jafnvel eftir að aðrir voru teknir við jörðinni. Sigmar nefnir hins vegar ekki konu Sigfúsar, Herborgu Halldórsdóttur, enda var hún dáin fyrir hans minni. Tvær sögur úr lífinu á Hofströnd frá þessum árum lífga upp á efnið og segja frá því sem hent gat unglinga á þessum árum. Þó að bókin sé ekki ýkja þykk, aðeins 86 blaðsíður í kiljuformi, er augljóst að höfundur hefur lagt í hana mikla vinnu og er útlit og prentun ágætlega unnið. Hins vegar hefði mátt vanda próf- arkalesturinn betur svo gagnmerkt sem sumt af efninu er. Óhætt er að mæla með riti þessu fyrir þá sem vilja halda til haga fróðleik um fyrri tíð. Þó að sögusviðið sé þröngt er frásögnin lifandi og gefur glögga mynd af lífinu á meðalbúi við sjávarsíðuna á Austurlandi í lok kreppu og við dagrenningu nýrra tíma. Sigurjón Bjarnason.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.