Skírnir - 01.01.1860, Side 29
Dnnuiörk*
FKETTIR.
31
jafnvel 12 hundruS enskra mílna1) á lengd, og mun hún kosin frá.
þá eru tvær eptir; önnur er leiðin yfir Rússland og Síberíu til
Béríngssunds, síban yfir sundiS og eyjarnar til Vankúfseyjar, og
þaban aptr meb fram vestrströndinni subr til Fransiskó og þaban
til Jórvíkr hinnar nýju. Leib þessi er og ákaflega löng og liggr
samtals um 2000 enskra mílna í sjó, en þab eru sund ein, sem ekki
er breibara en 500 enskra mílna. þá er leibin yfir ísland ein eptir,
og er hún nú álitin tiltækilegust ab dómi skynsamra manna. Leibin
frá Dúngalsnýpu á Skotlandi til Orkneyja, þá til Færeyja, þá til
íslands, þá til Grænlands, þá til Hellulands og þá til Marklands
er talin 2200 enskra mílna. ebr álíka löng, sem leibin milli Irlands
og Nýfundnalands; en sá er munrinn, ab hún liggr eigi nema
samtals 364 danskar mílur á mararbotni. þar ab auki er hafs-
dýpib minna á leib þessari og botninn jafnari. Saga þessi er frá
öbrum manni en Shaffner, og er hún næsta trúanleg, því sá mabr
á engan þann hlut ab máli þessu, ab hann mundi segja annab en
hann hyggr sannast og réttast, og fyrir þá sök verbr og sögn
Shaffners enn trúanlegri.
Færeyíngar eru í miklum uppgangi; þar hefir verib ár aligott,
þótt í kaldara lagi hafi verib, og verzlun þeirra steudr meb mikl-
urn blóma. Verzlunin þar er ab miklu leyti í sjálfra þeirra hönd-
um, ab minnsta kosti ab nafninu til. Færeyíngar hafa kaupfélag
eitt í þórshöfn, er heitir „hib færeyska félag”. Nokkrir aubbændr
hafa lagt fé til þess og eigu hluta í verzluninni; þeir fá ab vísu enga
leigu af fé sínu, heldr eru leigurnar lagbar vib innstæbuna, svo ab
eignarhluti þeirra verbr enn meiri. Fyrir þessa sök eru margir
hræddir um, ab verzlunarfélagib verbi þeim engin heillaþúfa; en
eigi þarf þó svo ab vera, því eignir félagsins vaxa aubsjáanlega
meb ári hverju. Félagib hefir reist smábúbir hér og hvar í víkum
og vogum; verzla félagsmenn þar á sumrum, ebr flytja eyjamönn-
um varníng sinn og sækja þangab aptr kaupvöruna. I annari grein
eru þeir og betr staddir en vér í kaupskap sínum; þeir eru lausir
’) Ensk míla á landi er hér um bil ii danskrar mílu, en ensk vika sjáv-
ar, er einnig kallast míla, er réttr fjórbúngr úr hnattmilu, sem er
ab kalla jöfn, en þó ímun styttri, cn dönsk vika sjávar.