Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 11
Baráttan um athyglina heldur áfram. Árbókin berst félagsmönnum og fjölda fyrirtækja á
hverju ári. í sameiningu verða félögin að vekja athygli á þessu ágæta riti og því hlutverki
sem það gegnir fyrir tæknimenn. Vísindagreinar, þar sem fagmenn greina frá rannsóknum,
hönnun eða framkvæmdum sem krefjast verulegrar tækniþekkingar og samtvinnun
faglegrar þekkingar, eru hvatning fyrir aðra tæknimenn að takast á við flókin og krefjandi
verkefni.
Efnahagshrunið hafði þau áhrif meðal annars að íslensk verktaka- og ráðgjafarfyrirtæki
hafa tekið að sér fjölbreytileg verkefni á erlendri grund. Þar fara íslenskir tæknimenn
fremstir í flokki. Komið hefur í ljós að reynsla þeirra og hæfni til að laga sig að breyttum
aðstæðum er mikil. Verðmæti þekkingarinnar, þar sem íslenskir tæknimenn hafa tekist á
við fjölþætt og margbreytileg verkefni, er óumdeilt.
Ég vil að lokum þakka Ragnari Ragnarssyni hans ötula starf við að afla greina og efnis í
bókina.
INNGANGUR RITSTJÓRA
Þessi árbók er hin tuttugasta og þriðja í röðinni, en sú fyrsta kom
út árið 1988. Allir félagsmenn í VFÍ og TFÍ fá bókina í hendur en
hún er innifalin í félagsgjöldum. Auk þess fá hana nokkrir tugir
áskrifenda, henni er dreift á bókasöfn og hún gefin við ýmis
tækifæri. Heildarupplag bókarinnar er 2500 eintök
í fyrsta kafla bókarinnar er greint frá félagsstörfum innan VFÍ og
TFI og nokkrum félögum tengdum þeim. í öðrum kafla, tækni-
annálnum, er farið vítt og breitt yfir tæknisviðið og helstu fram-
kvæmdir. I kaflanum um þróun efnahagsmála er gerð grein fyrir
áhrifum fjármálakreppunnar og í kjölfarið hruns bankanna á efnahag þjóðarinnar. í þriðja
kafla er fyrirtækjum gefinn kostur á að kynna starfsemi sína með því að segja frá því
markverðasta eða birta tæknigreinar er varða fyrirtækin. í fjórða kafla eru birtar ritrýndar
vísindagreinar en þeim fimmta almennar tækni- og vísindagreinar.
Að þessu sinni eru birtar 18 kynningar- og tæknigreinar frá fyrirtækjum í þriðja kafla
bókarinnar. I fjórða kaflanum eru birtar sjö ritrýndar vísindagreinar og í þeim fimmta níu
almennar tækni- og vísindagreinar.
Ritstjóri leggur áherslu á, eins og kostur er, að efni í árbókinni sé fjölbreytilegt og höfði til
félagsmanna VFÍ og TFÍ. Vegna takmarkaðs pláss eru höfundar beðnir um að koma efni
frá sér í sem stystu máli, en þó án þess að það komi niður á gæðum.
Kristni Andersen formanni VFÍ, Jóhönnu Hörpu Árnadóttur, fráfarandi formanni VFÍ, og
Bergþóri Þormóðssyni, formanni TFÍ, ásamt öðrum félagsmönnum sem lögðu hönd á
plóginn, er hér þakkað fyrir gott samstarf við gerð árbókarinnar. Árni Björnsson
framkvæmdastjóri og allt starfsfólk á skrifstofu félaganna fá þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf á árinu, svo og Pétur Ástvaldsson sem annaðist allan prófarkalestur bókarinnar.
Höfundum vísinda- og tæknigreina er þakkað fyrir vandaðar greinar og enn fremur
ritrýnendum vísindagreina. Loks eru fyrirtækjum og stofnunum færðar þakkir fyrir
fróðlegar kynningar- og tæknigreinar og fjárframlög til gerðar bókarinnar.
Það er von mín að félagsmenn hafi ánægju og fróðleik af lestri árbókarinnar og óska ég
þeim öllum velfarnaðar á nýju ári.
Félagsmál VFl/TFl
9