Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 139
Mat á umhverfisáhrifum
Hafin var vinna við mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar fyrri hluta árs
2003 og var VSÓ Ráðgjöf fengin til að halda utan um það verk undir verkstjórn Vega-
gerðarinnar.
Matsáætlun
Tillaga að matsáætlun var lögð inn til Skipulagsstofnunar í maí 2003 og var samþykkt þar
þann 24. júní það ár. Ýmsir aðilar voru fengnir til að gera rannsóknir á umhverfisþáttum
framkvæmdarinnar. Aðaláhersla var lögð á umfjöllun um landslag, fornminjar, gróður,
fuglalíf, jarðminjar, skipulag og landnotkun, útivist og ferðamennsku, svo og hljóðstig,
uniferðaröryggi og vatn.
Matsskýrsla
Matsskýrsla var svo tilbúin á fyrri hluta ársins 2004 og þann 16. júlí samþykkti
Skipulagsstofnun að auglýsa matsskýrslu Vegagerðarinnar um Gjábakkaveg þar sem hún
v°-'ri í samræmi við matsáætlun og lög um mat á umhverfisáhrifum. Nokkrar útfærslur á
Hjábakkavegi voru til athugunar og var haft samráð við helstu hagsmunaðila til þess að
stuðla að ásættanlegu vegstæði og hafði það m.a. þau áhrif að nýr vegur, skv. kröfu þjóð-
garðsyfirvalda, skildi alfarið vera utan marka þjóðgarðsins á Þingvöllum eða þess svæðis
sem nú er skráð á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.
Urskurður Skipulagsstofnunar
Með úrskurði sínum þann 11. nóvember 2004 féllst Skipulagsstofnun svo á lagningu
Hjábakkavegar frá Laugarvatni að Gjábakka. Úrskurður Skipulagsstofnunar var í sam-
ræmi við niðurstöðu matsskýrslu og fallist var á allar veglínur sem lagðar voru fram í
skýrslunni. Skipulagsstofnun setti í úrskurði sínum eftirfarandi skilyrði:
^egagerðin þarf að þrengja öryggis- og framkvæmdasvæði fyrirhugaðs vegar eins þröngt
°g kostur er, einkum þar sem hann liggur um hraunasvæði, í samráði við Umhverfisstofnun.
Vegagerðin þarf að lágmarka efnistöku og vanda til fyrirkomulags hennar og frágangs
efnistökusvæða í Litla-Reyðarbarmi, austan Beitivalla og í Miðfelli í samráði við
Umhverfisstofnun.
Yegagerðin þarf við lagningu vegar skv. Leið 12a að leggja fljótandi veg til að draga úr
Hirifum á votlendi. Auk þess er mikilvægt að Vegagerðin endurheimti votlendi á
^uðurlandi til jafns við það flatarmál sem raskast í samráði við hlutaðeigandi land-
eigendur og sveitarstjórnir. Áður en framkvæmdir hefjast þarf framkvæmdaraðili að bera
a£etlun um endurheimt votlendis undir Umhverfisstofnun.
Urskurður Skipulagsstofnunar kærður til Umhverfisráðherra
Úokkrir aðilar, þar á meðal Landvernd, Náttúrverndarsamtök íslands og fleiri kærðu
u^skurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra, sem úrskurðaði þann 28. júní 2005 að
Urskurður Skipulagsstofnunar væri felldur úr gildi og nýtt mat á umhverfisáhrifum
skyldi fara fram. í nýju mati átti m.a. að gera grein fyrir endurbyggingu núverandi vegar,
svokallaðri leið 1, og bera hana saman við aðra kosti.
NÝtt matsferli
^ kjölfarið var hafin vinna við nýja matsáætlun og þar með byrjað á nýju matsferli. Ný
'Uatsskýrsla var tilbúin í janúar 2006 en í henni voru metin áhrif af átta framkvæmda-
kostum. Niðurstaða matsins var sú að á heildina litið væru áhrif hinna mismunandi leiða
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 3 7