Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 37
Hægt er að vera gestafélagi í mesta lagi í þrjú ár. Gestaaðild fellur niður ef viðkomandi
félagsmaður segir sig úr heimafélaginu (SV, VFÍ eða TFÍ) eða hættir störfum í viðkomandi
landi. Samkomulagið gildir ekki um málefni nema (ungfélaga), eftirlaunaþega eða
félagsmanna sem af öðrum orsökum eru ekki fullgildir félagsmenn. Gestaaðildin er
gjaldfrí fyrir félagsmenn að því tilskildu að félagsaðildin í heimafélaginu sé í gildi og
félagsgjöld í skilum.
fslandsnefnd FEANI
^FÍ og TFÍ eru aðilar að FEANI, Evrópusamtökum verkfræðingafélaga og
taaknifræðingafélaga. I hverju aðildarlandi starfa landsnefndir og standa VFI og TFl
sameiginlega að íslandsnefnd FEANI. Félögin skiptast á um að hafa formennsku í
nefndinni á tveggja ára fresti og hefur fulltrúi VFÍ, Steindór Guðmundsson, gegnt
formennsku í nefndinni síðastliðin tvö starfsár. Nefndarmenn á starfsárinu voru Jóhannes
Benediktsson, Eiríkur Þorbjörnsson og Páll Á. Jónsson fyrir TFÍ og Steindór Guðmundsson,
Guðleifur M. Kristmundsson og Sigurður Brynjólfsson fyrir VFÍ. Jón Vilhjálmsson situr
auk þess í nefndinni sem formaður Eftirlitsnefndar FEANI á Islandi. Aðalfundur FEANI
er haldinn í september á hverju ári í einhverju aðildarlandanna, sem nú eru 30 talsins eftir
aðalfundinn 2010. íslandsnefndin hefur lagt áherslu á að senda fulltrúa á aðalfundinn á
hverju ári, og er það að jafnaði formaður nefndarinnar sem hann sækir.
FEANI starfar einkum í þremur málaflokkum, en haldnir eru nokkrir fundi á ári, þar sem
fulltrúar aðildarlandanna hittast og vinna að viðkomandi málaflokki. Þessir málaflokkar
eru í fyrsta lagi endur- og símenntunarmál (Continuing Professional Development, CPD).
I öðru lagi eru það menntamál, úttekt á námsbrautum og eftirlit með veitingu Eur.lng.
titilsins (European Monitoring Committee, EMC). I þriðja lagi eru svo Evrópumálin, áhrif
tæknimanna í Evrópu og samskipti við ESB. Islandsnefnd FEANI hefur ekki tekið virkan
þátt í fundum um þessa málaflokka hingað til, nema þeim fundum sem haldnir eru í
tengslum við ársfundinn á hverju ári.
Ársfundur FEANI
Ársfundur FEANI 2010 var haldinn 28. sept.-l. okt. 2009 í Sofiu í Búlgaríu. Þátttakendur
frá flestum aðildarþjóðunum sóttu fundinn, auk starfsfólks skrifstofunnar í Brussel.
Aðalfundurinn sjálfur var haldinn 1. október, en hina dagana voru fundir á vegum CPD
°g EMC. Einnig voru haldnir tveir kynningar- og umræðufundur („workshop") um
annars vegar menntunarmál verkfræðinga og tæknifræðinga (FEANI Position Paper
„Education") og hins vegar svonefnt „Professional Card", sem verið er að innleiða til
reynslu í nokkrum löndum hjá verkfræðinga- og tæknifræðingafélögum. Þá var einnig
svokölluð „Academic Session" um orkumál í Evrópu, þar sem m.a. var fjallað um FEANl
Position Paper „Energy".
Greinargerð um helstu málefni aðalfundar
Forseti FEANI, Lars Bytoft frá Danmörku, flutti skýrslu stjórnar, þar sem m.a. kom fram
að fjárhagur FEANI er áfram í góðu lagi. Góðar heimtur hafa verið á árgjöldum og reikn-
ingar voru samþykktir ásamt fjárhagsáætlun. Árgjöldin verða óbreytt næsta ár. Farið var
yfir nokkur verkefni sem hafa verið í gangi hjá FEANI.
Helsta verkefnið hefur verið nýtt gæðamatskerfi fyrir háskóla og tækniháskóla sem kenna
verkfræði og tæknifræði: „ENAEE / EUR-ACE accreditation". 1. október 2010 höfðu 682
námsbrautir fengið þessa nýju vottun og hafa þær verið teknar upp í FEANI-INDEX
ásamt öðrum viðurkenndum námsbrautum. Flestar af þessum 682 námsbrautum eru við
skóla sem ekki hafa áður verið vottaðir, m.a. í Rússlandi, en írar hafa t.d. keyrt sitt
skólakerfi í gegnum þessa nýju gæðavottun. Ástralía og Kúvæt hafa tekið upp þetta
gæðamatskerfi og áhugi er fyrir því í Úkraínu.
Félagsmál VFl/TFl i 35