Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 141
Verkframkvæmd
Alarkmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur í Bláskógabyggð og auka umferðar-
öryggi með því að uppfylla hönnunarkröfur, draga úr hæð yfir sjávarmáli og leggja
bundið slitlag á veginn. Jafnframt er nýjum vegi ætlað að bæta aðgengi ferðamanna og
sumarhúsagesta að vinsælum áningar- og ferðamannastöðum.
Heildarvegalengd Lyngdalsheiðavegar er um 15 km frá Laugarvatni að Þingvallavegi við
^iðfell. Að auki var byggður nýr tengivegur frá Lyngdalsheiðarvegi að gamla
Gjábakkavegi, um 1,7 km langur, sem nýtast mun þeim sem vilja aka að Laugarvatnshelli.
Einnig var innifalið í verkinu að gera hringtorg við Laugarvatn og tvo áningarstaði við
Lyngdalsheiðarveg. Efnisflutningar í veginn allan voru um 800.000 m3 sem tekið var úr
skeringum í vegstæði og námum. Vegurinn er 7,5 m breiður með mesta halla 5,4% og
krappasta beygjan er 650 m.
Áaetlaður heildarkostnaður vegna verksins er 1.260 m.kr. Þar af er kostnaður vegna
hönnunar, eftirlits, mats á umhverfisáhrifum og umsjón um 135 m.kr. Efniskostnaður var
Um 160 m.kr. Kostnaður vegna rannsókna var um 20 m.kr.
Helstu aðilar verksins
^egagerðin, sem er verkkaupi, hafði umsjón með undirbúningi og hönnun vegarins og
hafði Erlingur Jensson, deildarstjóri áætlana og hönnunarkaupa á Suðursvæði, umsjón
uteð undirbúningi. Erna Bára Hreinsdóttir, verkefnisstjóri á veghönnunardeild
Vegagerðarinnar, hafði með höndum verkefnisstjórn vegna mats á umhverfisáhrifum,
verkhönnun og gerð útboðsgagna. Verkhönnun var unnin af veghönnunardeild
^egagerðarinnar og jarðfræðideild Vegagerðarinnar sá um allan jarðfræðilegan
undirbúning. Fulltrúi verkkaupa með framkvæmdinni var Sigurður Kr. Jóhannsson,
deildarstjóri nýframkvæmda á Suðursvæði. VSÓ ráðgjöf annaðist umsjón framkvæmda
°g eftirlit. Umsjónarmaður var Einar Stefánsson en eftirlitsmaður var Ásberg Ingólfsson.
Mikil og góð samvinna við allan undirbúning og á framkvæmdastigi var við Bláskóga-
byggð, Umhverfisstofnun og Þingvallanefnd en í góðu samráði við Þingvallanefnd hefur
að undanförnu m.a. verið unnið að tillögum að aðgerðum til að halda umferðarhraða
niðri í gegnum þjóðgarðinn.
Helstu sérfræðingar sem komið hafa að mati á umhverfisáhrifum eru; Fornleifafræðistofan
annaðist fornleifaskráningu. Náttúrufræðistofnun íslands gerði rannsóknir á gróðri og
fuglalífi. Vegagerðin annaðist jarðfræðirannsóknir. Línuhönnun (nú EFLA) vann mat á
Umferðaröryggi. Orion Ráðgjöf gerði mat á vindafari, snjósöfnun, vetrarumferðaröryggi
°g hugsanlegum snjóflóðum á leiðinni.
Að rannsóknum vegna ákomu loftaðborinnar köfnunarefnismengunar hafa komið
Raunvísindastofnun Háskólans og Veðurstofan og hefur það verið unnið í góðri sam-
vinnu við Umhverfisstofnun. Einnig hefur verkfræðistofan Vegsýn komið að skýrslugerð
vegna þeirrar vinnu.
Verktaki var eins og áður segir Klæðning í upphafi en Vélaleiga AÞ ehf. tók við verkinu á
miðju ári 2009 þegar búið var að vinna um 1/3 af verkinu. Verkefnisstjórar af hálfu
Yélaleigu AÞ voru Eiður Haraldsson og Guðmundur Sigurðsson en Guðmundur
Agústsson var verkstjóri á verkstað.
Helstu undirverktakar voru Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., Hlaðbær Colas og
Vatnsskarðsnámur.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 3 9