Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 31
Það er ánægjulegt að viðburðir á vegum BVFÍ hafa verið vel sóttir. Á árinu 2011 hefur
deildin staðið fyrir tveimur hádegisfundum. Annars vegar var fundur um nýju skipulags-
lögin og aðal- og svæðisskipulag Reykjavíkur. Fyrirlesarar voru Stefán Thors, skipu-
lagsstjóri ríkisins, og Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðal- og svæðisskipulags
Reykjavíkurborgar. Hins vegar var boðað til fundar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja
en fyrirlesarar voru Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs íslands, og
Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.
Böðvar Tómasson, formaður BVFÍ
Rafmagnsverkfræðingadeild
I stjórn RVFÍ starfsárið 2010-2011 sátu Pétur Örn Magnússon formaður, Ólöf Helgadóttir
stallari, Garðar Kristján Halldórsson ritari og Margrét Edda Ragnarsdóttir gjaldkeri.
Starfsemi deildarinnar hefur verið með hefðbundnum hætti.
Aðalfundur RVFÍ 2010 var haldinn í Verkfræðingahúsi 25. maí 2010 þar sem ofangreind
voru kosin í stjórn.
RVFÍ veitti Orðanefnd veglegan styrk á starfsárinu til að styðja við mikilvægt starf
nefndarinnar við að auðga tunguna með íslenskum íðorðum um heiti og hugtök í raf-
magnsfræði og skyldum greinum. Nefndarmenn vinna starf sitt án nokkurrar þóknunar,
en hafa notið sérfræðiþjónustu íslenskufræðinga, sem þeir greiða laun fyrir þjónustuna.
Fulltrúar RVFÍ sóttu tvo fundi sem boðaðir voru af VFÍ. Þessir fundir voru annars vegar
til að ræða nýjar siðareglur félagsins, áhuga til að auka samstarf deildanna, til dæmis með
að bjóða öllum deildum í vettvangsferðir o.fl. Einnig var boðað til fundar til að ræða um
sameiningu SV og VFÍ. Mikill meirihluti fundarmanna virtist vera á því að sameina ætti
félögin.
Þann 20. janúar var farið í heimsókn í Háskólann í Reykjavík. Skólinn flutti í nýtt og
glæsilegt húsnæði á þessu ári og hefur öll aðstaða til kennslu og annarrar starfsemi tekið
miklum stakkaskiptum. Menntun verkfræðinga er eitt mikilvægasta hagsmunamál
Verkfræðingafélagsins. Farið var í gönguferð um húsnæði skólans og þá sérstaklega
aðstöðu til verklegrar kennslu og rannsókna. Fulltrúi HR kynnti einnig starfsemi
deildarinnar með áherslu á rafmagns- og vélagreinar.
Þann 3. mars var haldin kynning á
varmavélum í sal VFÍ í Verkfræð-
ingahúsi. Stofnandi og aðaleigandi
Varmavéla, Friðfinnur K. Daníelsson,
sagði frá áhugaverðum verkefnum,
reynslu sinni og frumkvöðlastarfi í
•slensku samfélagi. Friðfinnur er
vélstjóri og verkfræðingur að mennt
og hefur ásamt því að vinna með
varmadælur og lághitaofna starfað
árum saman við boranir eftir heitu og
köldu vatni. Með varmavélum er
hægt að lækka kostnað við rafhitun
húsa á köldum svæðum um allt að
60% og er orkusparnaðurinn 67-75%.
Arðsemismat hefur sýnt að slíkar
dælur borgi sig upp á 3-4 árum.
(www.varmavelar.is). Mikill áhugi
var fyrir þessari kynningu og mættu
Björgvin Guðmundsson var útnefndur rafmagnsverkfræðingur árs-
ins. F.v. Brian Harrington, fulltrúi IEEE, Karl Sölvi Guðmundsson,for-
maður íslandsdeildar IEEE,Guðrún Rögnvaldardóttir,formaður
dómnefndar,og Eyrún Linnet,formaður RVFÍ.
(Ljósm.Sigrún S.Hafstein)
Félagsmál VFÍ/TFÍ