Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 330
hylkjum sem komið er fyrir inni í borholuhúsi í þeim tilgangi að stýra vatnsyfirborði í
skiljunni. Þá er frágangur á skiljunni þannig að meðburður, til dæmis borsvarf, berst ekki
með vökvanum inn í varmaskipta eða áfram að niðurdælingarholu heldur fellur til botns
í skiljunni þaðan sem hann er fjarlægður í þjónustustoppum.
Eins og fyrr hefur komið fram hafa vandamál við rekstur jarðvarmaveitna í Ungverjalandi
og víðar meðal annars verið í tengslum við stíflaða eða trega niðurrennslisholu. Því var
ákveðið að koma síubúnaði fyrir við niðurrennslisholu. Virkni þessa búnaðar er með
þeim hætti að óhreinindi, 50 pm og stærri, setjast innan á síunet. Þrýstifall yfir síuna er
mælt og þegar það hefur náð forstilltu gildi fer í gang búnaður sem hreinsar síuna og
skolar óhreinindin út í niðurgrafinn tank þaðan sem þau eru síðan fjarlægð eftir því sem
tankurinn fyllist.
Við hönnun og val á búnaði var farið að evrópskum reglum með það að markmiði að
uppfylla kröfur PED (Pressure Equipment Directive 97/23/EC). Óháðir aðilar voru meðal
annars fengnir til úttektar á hönnun í samræmi við PED.
Helstu stærðir
Borholur
Vinnsluhola Dýpt: 1.820 m (ein hola) Afköst 26 1/s við 86°C (stöðug dæling) Borholudæla: IGE/Floway, 175 m, 150 HP Gasskilja (2,5 m3)
Niðurdælingarhola Dýpt: 1.670 m (ein hola)
Vatnssía Mahle, sjálfhreinsandi með bakskolun (50 pm)
Lagnir
Frá vinnsluholu að varmastöð DN200, 600 m löng, foreinangruð og niðurgrafin
Frá varmastöð að niðurrennslisholu DN200, 2.000 m löng, foreinangruð og niðurgrafin
Varmastöð
Plötuvarmaskiptar 3 stk, alls 150 m Efnisgæði: Títan
Hringrásardælur Grundfos, 2 stk
Stjórnlokar Tyco, með rafdrifi
Útboð og val á öllum búnaði var í höndum Mannvits. Um var að ræða hefðbundinn
búnað, svo sem plötuvarmaskipta, stopp- og stjórnloka, skynjara og fleira. Sérstaklega ber
að geta þess að borholudæla sem var valin er svokölluð öxuldæla (line shaft pump) frá
fyrirtækinu íslensk jarðhitatækni. Hönnun dælunnar er byggð á langri reynslu Orkuveitu
Reykjavíkur af virkjun á lághitaholum. Dælan sjálf er á um 170 m dýpi en rafmótor er í
borholuhúsi sem staðsett er yfir holunni. Afldreifi- og stjórnskápar voru smíðaðir af
íslenska fyrirtækinu Rafal ehf.
Jarðvarmaveitunni í Szentlörinc er í heild stýrt frá stjórnstöð. Stjórnstöðinni var komið
fyrir í kyndistöðinni við hlið búnaðar sem tengist því gaskyndi- og dreifikerfi sem fyrir
er. Vélstjóri hefur því yfirsýn yfir allan búnað stöðvarinnar á sama stað. Jafnframt gefur
skjár, sem staðsettur er í borholuhúsi, góða yfirsýn yfir ástand borholudælu, gasskilju og
annars búnaðar sem staðsettur er í og við borholuhúsið.
328| Árbók VFl/TFl 2011