Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 94
Vinnumarkaður 2010
Samantekt
Fjöldiþús.
210
175
140
105
70
'91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10
Atvinnuþátttaka,% -----Vinnuafl
Atvinnuþátttaka og vinnuafl 1991-2010.
Heimild: Hagstofa íslands.
90
85
80
75
70
65
Árið 2010 voru að jafnaði 180.900 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.300 starfandi
og 13.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81%, hlutfall starfandi 74,9%
og atvinnuleysi var 7,6%. Fjöldi atvinnulausra stendur nánast í stað frá árinu 2009, en frá
árinu 2008 hefur atvinnulausum fjölgað um 8.200. Sama má segja um starfandi, fjöldi
þeirra hefur lítið breyst frá árinu 2009 miðað
við fækkun upp á 11.300 manns frá árinu
2008. Árið 2010 var atvinnuleysi að meðaltali
9,5% í Reykjavík, 7,5% í nágrenni Reykja-
víkur og 5,5% utan höfuðborgarsvæðisins.
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði
eða lengur fjölgaði um 1.900 frá árinu 2009
til 2010, úr 900 eða 6,8% atvinnulausra árið
2009 í 2.800 eða 20,3% atvinnulausra árið 2010.
Árið 2010 var heildarvinnutími þeirra sem
voru við vinnu í viðmiðunarvikunni að
meðaltali 39,2 klukkustundir, 44,7 klst. hjá
þeim sem voru í fullu starfi og 23,3 klst. hjá
þeim sem voru í hlutastarfi.
Vinnuafl
Árið 2010 voru að jafnaði 180.900 á vinnu-
markaði sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku.
Atvinnuþátttaka karla var 84,4% en kvenna
77,6%. Vinnuafl og atvinnuþátttaka hélst
nær óbreytt milli áranna 2009 og 2010. Frá
árinu 2008 fækkaði fólki á vinnumarkaði um
3.100, úr tæplega 184.100 í rúmlega 180.900.
Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast
bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.
Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og
atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda.
Frá því að mælingar hófust hefur
atvinnuþátttaka alltaf verið mest í aldurs-
hópnum 25-54 ára eða í kringum 90%. Árið
2010 var hún 89,4%. Mestar sveiflur hafa
verið hjá aldurshópnum 16-24 ára, en það er
fámennasti hópurinn og hefur minnsta
viðloðun við vinnumarkaðinn. Árið 2010 var
atvinnuþátttaka þessa hóps 74,1% og 66,2%
hjá 55-74 ára.
Frá því að mælingar hófust hefur atvinnu-
þátttaka alltaf verið mest í aldurshópnum
25-54 ára eða í kringum 90%. Árið 2010 var
hún 89,4%. Mestar sveiflur hafa verið hjá
aldurshópnum 16-24 ára, en það er fámenn-
asti hópurinn og hefur minnsta viðloðun við
vinnumarkaðinn. Árið 2010 var atvinnuþátt-
taka þessa hóps 74,1% og 66,2% hjá 55-74 ára.
'94 '95 '96 '97 '98 '99 '00 '01 '02
— Alls — Karlar
'03 '04 '05 '06 '07
---------Konur
Atvinnuþátttaka eftir kyni 1991-2010.
HeimildrHagstofa (slands.
3 '94 95 96 97 98 99 '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08
-16-24ára -----25-54 ára -----55-74 ára
Atvinnuþátttaka eftir aldurshópum 1991-2010.
Heimild: Hagstofa íslands.
Árbók VFÍ/TFÍ 2011