Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 174
Hlutfall erlendra nemenda í framhaldsnámi er enn hærra. Haldið var áfram þeirri þróun
að stofna sérstök verkleg námskeið sem fylgja bóklegum fögum og þar með verður væg1
og sýnileiki verklegs hluta námsins aukið. Af þessu hlýst talsvert hagræði, bæði fyrir
stúdenta og deild. Rannsóknir í rafmagns- og tölvuverkfræði hafa verið öflugar á árinu
og gerðar í miklu samstarfi við erlenda háskóla, sem og fyrirtæki og stofnanir. Kennarar
og nemendur deildarinnar hafa birt fjölmargar ISI og ritrýndar ráðstefnugreinar með
samstarfsmönnum frá m.a. Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu, Ástralíu, Japan, Taiwan,
Kína, Svíþjóð og Danmörku.
Rafmagns- og tölvuverkfræðideild er í IEEE samtökunum og voru margir opinberir
fyrirlestrar haldnir við HÍ í samvinnu þessara aðila. Jón Atli Benediktsson, prófessor við
deildina og aðstoðarrektor rannsókna og kennslu HÍ, var kosinn forseti IEEE Geoscience
and Remote Sensing Society á árinu.
Vefsetur deildarinnar er von.hi.is/rtv
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Mikil aðsókn hefur verið í nám í umhverfis- og byggingarverkfræði síðustu ár. Tæplega
230 nemendur stunda nám á BS-, meistara- og doktorsstigi við deildina. Undanfarin ár
hafa hátt í 30 brautskráðst með BS-próf á ári. Framhaldsnám við deildina er öflugt og nú
stunda um 60 nemendur meistaranám og 12 doktorsnám. Auk þess eru um 10-15 erlendir
skiptinemar á hverjum tíma við deildina. MS- og Ph.D.-rannsóknir eru fjölbreyttar, m.a. á
sviði skipulags, orku, straumfræði, vatnafræði, umferðaröryggis og jarðskjálftaverkfræði-
Brautskráðir nemendur eru eftirsóttir í frekara framhaldsnám hjá virtum erlendum
skólum og til starfa hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Nokkrar breytingar urðu á námi í umhverfis- og byggingarverkfræði haustmisserið 2010.
Sett var á fót námskeiðið Starf og ábyrgð verkfræðinga sem kennt er á fyrsta misseri í
BS-námi. Námskeiðið er 6 ECTS einingar og tekur við af tveimur minni námskeiðum,
Verkfræðingur og umhverfið og Starfssvið verkfræðinga, sem kennd hafa verið á haust-
misseri og vormisseri fyrsta árs. Innihald nýja námskeiðsins er kynning á umhverfismálurn,
verksviði verkfræðinga, siðfræði fagsviðsins, sögu verkfræðinnar, heimildameðferð,
vinnu í þverfaglegum hópum, nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Námskeiðið Eðlisfræði 2
var gert að valnámskeiði á þriðja ári og námskeiðið Umhverfisverkfræði var fært á 3. misseri
frá 6. misseri til að tryggja samfellu í kennslu í umhverfisverkfræði. í framhaldsnámi var
gerð sú breyting að öll framhaldsnámskeið voru stækkuð úr 6 ECTS einingum í 7,5 ECTS
einingar og samhliða lögð meiri áhersla á verkefnavinnu í námskeiðunum.
Rannsóknir við deildina eru kraft-
miklar og í góðu samstarfi við
innlenda og erlenda háskóla, fyrirtæki
og stofnanir, m.a. frá Norður-
löndunum, Evrópuríkjum, Banda-
ríkjunum og Asíu. Deildin leiðir
verkefnið GEORG, GEOthermal
Research Group (www.georg.hi.is),
styrkt af Vísinda- og tækniráði
Rannís, sem er samstarfsverkefni
fjölþjóðlegra þátttakenda. Niður-
stöður rannsókna eru birtar á alþjóð-
legum ráðstefnum og í vísinda-
greinum. Sjá má lista yfir birtar
greinar og lokaritgerðir á heimasíðu
deildarinnar, www.von.hi.is/ub
1 7 2 | Árbók V F í/T F I 2011