Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 22
félagsmanna að upphæð um 10,3 millj. kr. Um er að ræða mikla fjölgun styrkja frá fyrra
ári þegar úthlutað var 67 styrkjum að upphæð kr. 4,7 millj. kr.
Styrkveitingar skiptust þannig:
Dagpeningar: 31 styrkir að upphæð 4,7 millj. kr.
Líkami og sál: 86 styrkir að upphæð 2,1 millj. kr.
Laseraðgerðir og gleraugu: 126 styrkir að upphæð 1.887 þús. kr.
Tannviðgerðir: 8 styrkir að upphæð 382 þús. kr.
Aðrir styrkir: alls 7 að fjárhæð 1,1 millj. kr.
Rekstrarhagnaður sjóðsins nam rúmum kr. 16,7 millj. kr. en innborguð árgjöld voru rúm-
lega 25 millj. kr. Heildareignir í árslok námu tæpum 102 millj. kr.
Skýrsla Orlofssjóðs KTFÍ2070
í gildi er samningur milli KTFÍ og OBHM um að félagsmenn KTFÍ geti greitt í OBHM.
Greiðslur vegna félagsmanna sem vinna hjá ríki eða borg, nokkrum sveitarfélögum og
fyrirtækjum í eigu ríkis eða borgar fara beint til OBHM. Aðrir aðilar greiða í Orlofssjóð
KTFÍ sem stendur svo skil á greiðslum til OBHM. Þessar greiðslur voru á árinu 2010 fyrir
212 félagsmenn og komu frá 137 fyrirtækjum.
Skýrsla Vísinda- og starfsmenntunarsjóðs KTFÍ
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður KTFÍ á byggir á samkomulagi Kjarafélagsins við
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Reykjavíkurborg frá 1989. Það eru starfsmenn ríkisins,
Reykjavíkurborgar og þeirra sveitarfélaga sem gert hafa samning við KTFÍ, auk
starfsmanna annarra vinnuveitenda sem hafa gerst aðilar að sjóðnum, sem rétt eiga á
styrkjum úr sjóðnum, samtals 236 félagsmenn á árinu 2010.
Reglur sjóðsins hafa lengi verið óbreyttar. Hámarksstyrkur er kr. 300.000 en þau réttindi
nást almennt eftir þriggja ára sjóðsaðild, réttindi vinnast síðan upp aftur eftir úthlutun,
um eitthundrað þúsund kr. á ári, hjá öðrum en ríkisstarfsmönnum. Sú breyting hefur þó
verið gerð að vegna lægra iðgjaldahlutfalls ríkisstarfsmanna að ávinnsluréttur þeirra er
nú kr. 65.000 á ári og á það við bæði um upphafsréttindi og endurnýjun réttinda eftir
úthlutun. Styrkir til tölvukaupa geta mest orðið kr. 150.000 eða 75% af reikningsupphæð
tölvubúnaðar.
í framhaldi af breyttum kjarasamningum hefur sjóðnum verið skipt upp í tvær deildir, A
og B deild, sem eru nokkuð svipaðar að stærð en með mismunandi réttindi.
Skipting umsókna á milli efnisflokka árið 2010 er nú
31 umsókn til náms, námskeiða og ráðstefnuferða
og 27 umsóknir hafa verið til kaupa á tölvubúnaði,
samtals 58 umsóknir.
Stjórn sjóðsins er nú skipuð eftirtöldum tveimur
fulltrúum KTFÍ og tveimur fulltrúum vinnu-
veitenda; Haraldur Sigursteinsson, formaður KTFÍ,
Óli Jón Hertervig, ritari, KTFÍ, Angantýr Einarsson,
f.h. fjármálaráðherra og Árni R. Stefánsson f.h.
Reykjavíkurborgar.
í 1
Fjöldi félaga
Ríkið 103
Orkuveitan 32
Reykjavíkurborg 23
Önnur sveitarf., stofnanir o.fl. 60
RARIK 18
Samtals aðrir en ríkið 133
Samtals 236
20 | Árbók VFÍ/TFÍ 2011