Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 74
Sameigmlegur skrifstofurekstur S V, VFÍ og TFÍ hefur gert það kleift að veita félagsmönnum
stéttarfélagsins betri daglega þjónustu vegna samlegðaráhrifa og gert félagið sýnilegra á
margan hátt. Sífellt fleiri leita til skrifstofunnar eftir þjónustu og upplýsingum og þeim
félagsmönnum fjölgar sem taka þátt í störfum félagsins, einkum í samninganefndum.
Almennur vinnumarkaður
Um miðjan mars urðu önnur merk tímamót hjá SV þegar fyrsti kjarasamningur
Stéttarfélags verkfræðinga við Samtök atvinnulífsins var undirritaður. Verkfræðingar á
almennum vinnumarkaði utan verkfræðistofa hafa að mestum hluta verið án kjara-
samninga. Þetta eru um 700 félagsmenn sem starfa hjá ýmsum fyrirtækjum, einkum í
iðnaði, þjónustu og verslun. Um er að ræða ótímabundinn réttindasamning sem þýðir að
þar eru ekki launatöflur og prósentuhækkanir fólgnar en sagt að samið skuli um markaðs-
laun. Þetta kallar á auknar kröfur um sem bestar upplýsingar um kjör á almennum
markaði og aðstoð við undirbúning launaviðtala, yfirlestur ráðningarsamninga, jafnt
nýrra sem eldri. Meðal réttinda sem samið var um er 37,5 stunda vinnuvika eða 162,5 klst.
vinnuskylda á mánuði. Nýi samningurinn leysir af hólmi kjarasamning SV við
ráðgjafarverkfræðinga sem viðmiðunarkjarasamningur á almennum vinnumarkaði.
í janúarbyrjun var undirritaður kjarasamningur SV við FRV vegna verkfræðistofanna.
Samið var um rúmlega 4,9% hækkun í tveimur skrefum, í febrúar 2,4% og júlí 2,5%, og
var gildistími til eins árs. Samningurinn nær til um 350 félagsmanna. í aprílbyrjun var
þannig lokið við að semja fyrir um 1050 félagsmenn eða nær alla á almennum markaði.
Aðrir kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum hafa verið gerðir við ohf.-fyrirtækin
sem hefur fjölgað undanfarin ár. Þessi opinberu hlutafélög falla undir lagarammann sem
gildir á almenna markaðnum þó að þau séu í eigu opinberra aðila. Mörg þeirra eru nú
innan vébanda Samtaka atvinnulífsins og kemur SA því að gerð kjarasamninganna. Hið
sama á við um Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er sameignarfélag. Ohf.-fyrirtækin eru
m.a. RARIK, MATÍS og Isavia. Gerður var kjarasamningur við OR en viðræður við önnur
fyrirtæki gengu hægt.
Opinber vinnumarkaður
Viðræður um kjarasamninga á opinberum vinnumarkaði fylgdu eins og jafnan í kjölfar
samninga á almennum vinnumarkaði, en þar hafði verið samið til þriggja ára frá 1. maí
2011 til 31. mars 2014. Launahækkanir voru 4,25% árið 2011, 3,5% árið 2012 og 4,3% árið
2013. Til viðbótar var samið um eingreiðslur.
í lok starfsárs voru viðræður við Reykjavíkurborg og ríkið að hefjast og síðan tóku við
viðræður við sveitarfélögin. Fyrir lá að hækkanir í þeim kjarasamningum yrðu sambæri-
legar því sem SA og ASI höfðu samið um á almennum vinnumarkaði.
Var markmið SV að ljúka þeim samningum fyrir sumarleyfi og voru það síðustu kjara-
samningarnir sem Stéttarfélag verkfræðinga var aðili að.
Kjarasamningar vegna þjónustusamninga
SV hefur gert þjónustusamninga við þrjú stéttarfélög um rekstur á félögunum og þjónustu
við félagsmenn þeirra. Hefur samvinnan við félögin verið með miklum ágætum.
Stéttarfélag tölvunarfræðinga
SV hefur í rúm tíu ár séð um rekstur Stéttarfélags tölvunarfræðinga (ST). Nú eru um 115
tölvunarfræðingar í ST. Félagið var aðili að gerð samningsins við Samtök atvinnulífsins
og er það fyrsti kjarasamningur sem félagið gerir en hann gildir fyrir tölvunarfræðinga á
almennum vinnumarkaði.
7 2
Arbók VFÍ/TFÍ 2011