Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 20
Stjórnarfundir TFÍ: Magnús Þór Karlsson og Ingvar Blængsson hafa setið stjórnarfundi
TFI til skiptis, þ.e. annað hvert skipti. Einnig hefur formaður sótt nokkra fundi.
Fjárhagur STFÍ: Fjárhagur STFÍ er góður eins og fyrri ár. Samkvæmt ársreikningi voru
tekjur umfram gjöld á árinu.
Framtíð STFÍ: Stjórn STFÍ ætlar að halda áfram á svipaðri braut með fyrirlestrum og
hugsanlega námskeiðum fyrir félagsmenn.
Daði Ágústsson formaður, Magnús Þór Karlsson gjaldkeri og Ingvar Blængsson ritari
Ársskýrsla KTFÍ
í stjórn félagsins eru Þór Sigurþórsson formaður, Jón ísaksson Guðmann varaformaður,
Haraldur Sigursteinsson gjaldkeri, Samúel S. Hreggviðsson, Árni Þór Árnason, Karl
Jensson og Vilberg Tryggvason. Varamenn í stjórn eru Bjarni Bentsson og Hreinn Ólafsson.
Starfsárið hefur verið annasamt á ýmsum sviðum og margir félagsmenn hafa leitað eftir
aðstoð félagsins. Einkum hafa þó margir óskað eftir lögfræðiaðstoð vegna innheimtu
vangoldinna launa úr Ábyrgðarsjóði launa og annarra launatengdra greiðsla úr þrota-
búum fyrirtækja. Einnig hafa félagsmenn óskað eftir lögfræðiálitum á óeðlilegum og/eða
ólöglegum uppsögnum. Einstaklingsmál voru að öðru leyti leyst með aðstoð skrifstofu
félagsins.
Litlar breytingar urðu á vinnumarkaði á sl. ári en tæknifræðingum á atvinnuleysisskrá
fækkaði þó úr 113 í desember 2009 í 82 í desember 2010. Einhverjir hafa farið utan og aðrir
í framhaldsnám. Á síðasta ári útskrifuðust frá HR 153 nemendur á tæknifræði- og verk-
fræðibraut.
Brýnasta verkefnið í íslensku samfélagi er að vinna bug á atvinnuleysinu, en búast má við
nokkru atvinnuleysi næstu tvö eða þrjú árin. Skrifstofa félagsins hefur leiðbeint og
aðstoðað félagsmenn a þessum erfiðu tímum. \ u eru rúm þrjú ár síðan rekstur
sameiginlegrar skrifstofu VFÍ, TFÍ, KTFÍ og SV hófst og er hún bakhjarl fyrir innra starf
félaganna.
Haldnir voru 13 stjórnarfundir á starfsárinu og voru félaga- og kjaramál þar fyrirferðar-
mest. Mikill fjöldi félagsmanna leitaði aðstoðar skrifstofunnar við gerð ráðningar-
samninga og öflun upplýsinga um markaðslaun tæknifræðinga. Skrifstofan vann að því
að tryggja félagsmönnum iðgjaldagreiðslur í sjúkra- og orlofssjóð félagsins en margir
vinnuveitendur höfðu sleppt þeim greiðslum þar sem félagsmenn skiluðu félagsgjaldi
sínu sjálfir.
Undanfarin tvö ár hafa markaðslaunaráð KTFÍ og SV unnið saman að launakönnun
félagsmanna. Nú eru framkvæmdar tvær kannanir á ári. Önnur í mars þar sem spurt er
um febrúarlaun og laun sl. árs, hin í október þar sem spurst er fyrir um septemberlaun.
Fást þannig launaupplýsingar á sex mánaða fresti. Fyrsta markaðslaunatafla tækni-
fræðinga kom út fyrir árið 2010.
KTFÍ er deild innan Tæknifræðingafélags íslands. Félagið hefur sjálfstæðan fjárhag og
hefur fullt sjálfstæði til að vinna að bættum kjörum félagsmanna á hvern þann hátt sem
landslög leyfa. I því skyni fer félagið með samningsrétt fyrir hönd félagsmanna sinna um
launakjör.
Félagsmenn eru nú um 950, þar af starfa um 120 hjá ríkinu og opinberum hlutafélögum,
60 hjá Reykjavíkurborg og hlutafélagsvæddum stofnunum borgarinnar, um 40 eru frá
öðrum sveitarfélögum, um 220 a verkfræðistofum og um 510 starfa á almennum virtnu-
markaði, þ.e.a.s. hjá verktökum, iðnfyrirtækjum o.fl.
1 8
Arbók VFl/TFl 2011