Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 29
Kvennanefnd VFÍ
Fyrri hluta ársins 2010 sátu Arna S. Guðmundsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Jóhanna
H. Árnadóttir, Kolbrún Reinholdsdóttir og Sveinbjörg Sveinsdóttir í stjórn Kvenna-
nefndar VFÍ. Vorið 2010 gengu Arna S. Guðmundsdóttir og Jóhanna H. Árnadóttir úr
stjórn og eru þeim þökkuð góð störf í þágu nefndarinnar á umliðnum árum. Margrét
Edda Ragnarsdóttir og Svanhvít Júlíusdóttir eru nýjar stjórnarkonur í KVFI.
Rétt er að rifja upp að nefndin var stofnuð aldamótaárið 2000 til að hvetja konur til
þátttöku í félagsstarfi VFÍ og til að efla tengslanet kvenna með því að stuðla að kynnum
innan stéttarinnar. Starfið hefur verið opið öllum verkfræðingum og tæknifræðingum,
óháð félagsaðild. Með þeim hætti er vonast til að ná til sem flestra tæknimenntaðra
kvenna í landinu. Kvennanefnd VFÍ vill beita sér fyrir því að konur í stéttinni hafi jafn
mikil áhrif og taki jafnan þátt í tækniþróun og karlar.
Á starfsárinu sátu þrjár konur í stjórn VFÍ, þær Jóhanna Harpa Árnadóttir formaður,
Guðrún Sævarsdóttir og Sveinbjörg Sveinsdóttir. I stjórnum nefnda og deilda félagsins
sátu, auk stjórnar kvennanefndar, samtals tíu konur. I stjórn Stéttarfélagsins voru fjórar
konur og í stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga var ein kona.
Um árabil hefur kvennanefnd Verkfræðingafélags íslands átt gott samstarf við Félag
kvenna í læknastétt á íslandi, Félag kvenna í endurskoðun og Félag kvenna í lögmennsku.
Á árinu 2010 bættist Félag prestvígðra kvenna í þennan hóp fagfélaga kvenna. Á hverju
ári er haldinn sameiginlegur fundur félaganna. Á árinu 2010 stóðu konur í endurskoðun
fyrir fundinum en í ár er röðin komin að KVFÍ að standa að slíkum fundi. Hann er
áformaður snemma vors 2011 en endanleg dagskrá liggur enn ekki fyrir.
KVFÍ víkkaði tengslanet sitt enn frekar út á starfsárinu er stjórn félagsins ákvað að taka
boði um að ganga til liðs við Skotturnar sem er samstarfsvettvangur íslenskra kvenna.
Ríflega tuttugu félög kvenna eru aðilar að Skottunum, sem hafa það að markmiði að
virkja allar konur til aðgerða í þágu jafnréttisbaráttu kvenna.
Fyrsti félagsfundur nýrrar stjórnar KVFÍ var haldinn í Verkfræðingahúsi 13. október 2010
undir yfirskriftinni Skotturnar komnar á kreik. Margrét Rögnvaldsdóttir sagði frá
Skottunum og fyrirhugðu kvennafríi 25. október 2010 í tilefni þess að þrjátíuogfimm ár
voru liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar
Á mannamáli, velti fyrir sér orðræðu og viðhorfi til kynbundins ofbeldis á Islandi.
Líflegar umræður sköpuðust á fundinum. Nokkrar konur buðu í framhaldinu fram
starfskrafta sína til að aðstoða við sölu á merkinu Kynjagleraugun, gleraugu með einu
bláu og öðru bleiku gleri, sem seld voru til styrktar baráttu gegn kynferðisofbeldi sem var
þema kvennafrísins 2010.
Þann 20. nóvember ávarpaði formaður KVFÍ kvenverkfræðinema á Galakvöldi þeirra sem
haldið var í Verkfræðingahúsi. Veitingar á fundinum voru að hluta til í boði KVFI.
Fundurinn var vel sóttur og skemmtu konur sér hið besta.
KVFÍ skipulagði 17. febrúar 2011 heimsókn í Rannsóknasetur í kerfislíffræði [systems
biology] við HÍ. Leiðsögn var í höndum Sigurðar Brynjólfssonar, prófessors við
vélaverkfræðideild HÍ, en hann er einn af hugmyndafræðingum rannsóknarsetursins.
Aðrir sem stóðu að stofnun setursins eru Bernharð Örn Pálsson, prófessor í lífverkfræði
við UCSD, og Eiríkur Steingrímsson, rannsóknaprófessor við læknadeild HÍ.
Rannsóknasetur í kerfislíffræði er miðstöð kerfisbundinna rannsókna á flóknum
líffræðilegum ferlum en þar skarast rannsóknir á sviði verkfræði, raunvísinda og
læknisfræði. Heimsóknin færði gestum heim sanninn um að þverfaglegt samstarf leggur
grunninn að vísindum nútímans.
Síðast en ekki síst skal þess hér getið að 28. janúar 2011 skrifaði framkvæmdastjóri VFÍ
undir samning við Margréti Guðmundsdóttur sagnfræðing um heimildaöflun vegna
ritunar sögu íslenskra kvenverkfræðinga. Nám þeirra, vinna og verk verða í brennidepli
2 7
Félagsmál VFl/TFf