Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 302
Lokaorð
Hér að framan hefur í fyrsta sinn verið sett fram heildaryfirlit yfir afl og orku sjávarfalla
í hafinu umhverfis ísland. Niðurstöðurnar byggja á útreikningum í reiknilíkani sem hefur
verið í þróun frá árinu 1993. Líkanið hefur verið kvarðað að viðamiklum mælingum á
sjávarhæð við strendur landsins og á landgrunninu og samanburður mældrar og
reiknaðrar sjávarhæðar staðfestir mikla nákvæmni líkansins.
Á stórum svæðum á landgrunni íslands við Vestfirði og Austfirði, í Breiðafirði og víðar er
orka sjávarfalla á bilinu 0,1 til 1 MWh/m2/ár. í sterkum röstum á nokkrum stöðum við
opnar strendur landsins er hún á bilinu 1 til 10 MWh/m2/ár og staðbundið í þröngum
fjörðum og sundum milli eyja er hún mun meiri. Þær niðurstöður sem hér eru settar fram
takmarkast af upplausn líkansins sem hér er notað og því getur staðbundinn þéttleiki
orku og afls verið verulega vanmetinn vegna mjög staðbundinna áhrif á einstaka stað s.s-
í röstum í þröngum fjörðum eða á milli eyja. Þrátt fyrir það ætti heildaryfirlit yfir orku og
afl sjávarfalla á stærri svæðum að vera gott. Niðurstöðurnar gefa því mjög gagnlegt yfirlit
yfir orku og afl sjávarfalla í hafinu umhverfis íslands sem nýtist við skoðun á mögulegri
nýtingu sjávarfallaorku við landið.
Heimiidir
[1] Abonnel,C. & Louis,F.,2009, La Rance: more than 40 years of successful operation. The International Journal on
Hydropower & Dams; Marine Energy,47-50
[2] Anna Fanney Gunnarsdóttir, 2003. Dreifing olíumengunar í hafi samkvæmt niðurstöðum reklíkans: Samanburður á
siglingaleiðum suðvestur af landinu. M.S. ritgerð við HÍ. Umsjón: Ingibjörg Jónsdóttir og Jón Ólafsson.
[3] Atlas of UK Marine Renewable Energy Resources. Atlas Pages. A Strategic Environmental Assessment Report. March 2008.
Produced by ABPmer,The Met Office, Proudman Oceanographic Laboratory (http://www.renewables-atlas.info/).
[4] Atlas of UK Marine Renewable Energy Resources. Technical Report. May 2008. ABP Marine Environmental Research Ltd.
Report No.R.1432.
[5] Grabbe, M., Lalander, E., Lundin S. & Leijon, M., 2009. A review of the tidal current energy resource in Norway. Renewable
and Sustainable Energy Reviews 13 (2009) 1898-1909.
[6] Lyard, F., Lefévre, F., Letellier,T & Francis, 0., 2006, Modelling the global ocean tides: a modern insight from FES2004, Ocean
Dynamics, 56,394-415.
[7] Maren Davíðsdóttir, 2008. Víkurhólar íEyjafirði:Skriðufallísjó fram og hugsanleg flóðbylgja afþess völdum. M.S. ritgerð við
HÍ. Leiðbeinandi: Páll Einarsson.
[8] McClure M. K., 2004. Tidal& Current Energy Resources in Ireland. Granted by Sustainable Energy Authority of Ireland.
[9] Shpolyanskij, Yu.B., Usachev, I.N. & Istorik, B.L., 2009, Russian tidal and wave power development: experience of the
Kislogubskaya tidalplant.The International Journal on Hydropower & Dams; Marine Energy,5-9
[10] Tarotton, M. & Larson, M., 2006, Canada Ocean energy Atlas (Phase 1). Potential Tidal Current Energy Resources. Analysis
Background. Prepared for Canadian Hydraulics Centre,Ottawa,Ontario.Triton Consultants Ltd.,Vancouver.
[11] Tómasson, G.G. & Káradóttir, Ó.R., 2005a, A two dimensional numerical model ofastronomical tide and storm surge in the
North Atlantic Ocean, In "Second International Coastal Symposium in lceland at Höfn the Town of Hornafjörður, 5-8
June, 2005','edited by G.Viggosson.
[12] Tómasson, G.G. & Káradóttir, Ó.R., 2005b, Applications of the two dimensional numerical model of astronomical tide and
storm surge in the North Atlantic Ocean. In "Second International Coastal Symposium in lceland at Höfn the Town of
Hornafjörður, 5-8 June, 2005','edited by G.Viggosson.
[13] Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddson hf., 2008. Sjávarfallastraumar í Breiðafiröi. Orka í sjávarföllum. 1. áfangi. Unnið fyrir
Sjávarorku ehf.
3 0 0
Arbók VFÍ/TFÍ 2011