Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 85
Að árinu 2009 undanskildu er samdráttur
landsframleiðslu á árinu 2010 sá mesti sem
'uælst hefur frá árinu 1968, en þá nam hann
5,5%. Landsframleiðsla á árinu 2010 varð
svipuð að raungildi og landsframleiðsla
ársins 2005. Að teknu tilliti til fólksfækkunar,
sem nam 0,4%, dróst landsframleiðsla á
ntann saman að raungildi um 3,6% árið 2010
en hafði árið áður dregist saman um 6,6%.
Œinkaneysla
Einkaneysla dróst saman um 0,4% á árinu
2010 og er það þriðja árið í röð sem einka-
neysla dregst saman. Á árinu 2009 dróst
neyslan saman um 14,9% og 7,9% árið 2008.
Að raungildi varð einkaneysla á síðastliðnu
ari lítillega hærri en á árinu 2003.
Til langs tíma litið hefur vöxtur einkaneyslu
að mestu haldist í hendur við vöxt lands-
framleiðslu. Þó eru nokkrar undantekningar
frá þessu, eða 1998, 1999, 2003, 2005 og árin
2008-2010 þegar verulegur munur var á
þróuninni. A árinu 2010 var einkaneysla 46%
meiri en hún var á árinu 1990 en á sama tíma
hefur landsframleiðsla vaxið um 60%. Á
saina tíma var 25% fólksfjölgun. Einkaneysla
á mann hefur því aukist um 17% en lands-
framleiðsla um 28%.
Árið 2010 reyndist hlutfall einkaneyslu af
landsframleiðslu vera 51,2%, samanborið
við 51% árið á undan. í sögulegu samhengi
er þetta hlutfall mjög lágt, var á bilinu
53-60% fram til ársins 2008.
Samneysla
Samneysla dróst saman um 3,4% á árinu 2010 og fara þarf aftur til ársins 1950 til þess að
finna meiri samdrátt, 3,6%. Árið 2009 dróst hún saman um 1,7% og kom samdrátturinn á
síðastliðnum tveimur árum í kjölfar mikils vaxtar á árunum þar áður, 4,6% árið 2008 og
4,1% árið 2007. Sem hlutfall af landsframleiðslu var samneysla 25,9% á árinu 2010 sem er
nokkru minna en árið áður þegar hlutfallið var 26,5%. Síðastliðin níu ár hefur þetta hlut-
fall jafnan verið hærra en nokkru sinni fyrir þann tíma.
Fjárfesting
Pjárfesting dróst saman um 8% á árinu 2010 og var það fjórða samdráttarárið í röð. Árið
2009 nam samdrátturinn 51,1%, 20% 2008 og 12,2% 2007 eftir mikinn vöxt fjögur ár þar á
undan. Fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu nam 13% og er þetta hlutfall nú í
sögulegu lágmarki. Sambærilegt hlutfall fyrir OECD-ríkin í heild hefur verið mun
stöðugra, um eða undir 20% undanfarinn aldarfjórðung.
Atvinnuvegafjárfesting stóð í stað eftir mikinn samdrátt undanfarin þrjú ár, það er 55%
árið 2009 og um 23,5% árin 2007 og 2008. Almennt var minni fjárfesting í byggingum og
8 3
Tæknianná