Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 90
Iðnaður
Verðmæti seldra framleiðsluvara 2010
Verðmæti seldra framleiðsluvara var 666 milljarðar króna árið 2010 en var 574 milljarðar
króna árið 2009 sem er 16% aukning milli ára. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðslu-
verðs um 11,7% og hefur því verðmæti seldra framleiðsluafurða aukist um 4,3% að raun-
gildi. Eftir atvinnugreinum vegur framleiðsla á matvælum og drykkjarvörum sem fyrr
þyngst, nam 303 milljörðum árið 2010 og voru þar af 216 miíljarðar vegna framleiddra
fiskafurða. Framleiðsla málma var 37,1% af verðmæti árið 2010 og nam rúmlega 247
milljörðum króna. Verðmæti seldra fiskafurða og málma nam samtals rúmum 463
milljörðum árið 2010 eða tæplega 70% af verðmæti seldra framleiðsluvara árið 2010.
Verðmæti seldra framleiðsluvara án fiskafurða og framleiðslu málma jókst um 10,5% frá
fyrra ári, úr 184 milljörðum króna árið 2009 í 203 milljarða króna árið 2010.
Útflutningsverðmæti framleiddra fiskafurða
voru rúmir 216 milljarðar króna árið 2010
sem er tæp 8,1% aukning frá árinu 2009
þegar fluttar voru út sjávarafurðir fyrir rúm-
lega 200 milljarða króna. Á sama tíma dróst
magn útfluttra fiskafurða saman um 3%, úr
616 þúsund tonnum árið 2009 í 597 þúsund
tonn árið 2010. Útflutningsverðmæti fram-
leiddra málma var um 247 milljarðar króna
árið 2010 sem er um 29,5 % aukning saman-
borið við 191 milljarð árið 2009.
Eftir deildum atvinnugreina jókst verðmæti
seldra framleiðsluvara hlutfallslega mest í
framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum
vörum, um rúmlega 5,9 milljarða króna eða
171% á milli ára. Verðmæti framleiðslu
annarra ótalinna véla og tækja jókst um rúm-
lega 2,4 milljarða á milli ára eða um 19,8%
frá fyrra ári. Framleiðsla, ótalin annars
staðar, jókst um 16% á milli ára sem og fram-
leiðsla á fatnaði, leðri og leðurvörum. 1 fram-
leiðslu á matvælum og drykkjarvörum, án
fiskafurða, nam aukningin rúmlega 8,4
milljörðum eða 10,7% þar sem verðmæti
seldrar framleiðslu jókst úr rúmlega 78
milljörðum árið 2009 í tæpa 87 milljarða árið
2010.
Milli áranna 2009 og 2010 varð samdráttur hlutfallslega mestur í námi og vinnslu hráefna
úr jörðu, þar sem verðmæti seldra framleiðsluvara dróst saman um 304 milljónir króna
eða um 13,8% samanborið við árið 2009. Verðmæti framleiðslu á vörum úr málmlausum
steinefnum dróst saman um rúm 12% þar sem verðmæti seldrar framleiðslu lækkaði um
tæplega 1,2 milljarð á milli ára.
Milljaröar króna Billion ISK
08 Nám og vinnsla hráefna úr jöröu |
10/11 Matvæla- og drykkjarvöruframl.
13 Framleiðsla á textílvörum j[
14/15 Framleiösla áfatnaöi og leöurvörum|
16 Framleiösla á viöi og viðarvörum |
17 FramleiÖsla á pappír og pappfrsvöru ®
18 Prentun og Qölföldun upptekins efnisjfil
20/21 Framleiösla á efnavörum og lyfjum |§§§
22 Framleiösla á gúmmf- og plastvörum®®
23 Framleiösla á vörum úr steinefnum BBI
25 Framleiösla á málmvörum
26/27 Framleiösla á tölvu- og rafbúnaöi BLkí
28 Framleiðsla á öörum vélum og tækjum R§|
29/30 Framleiðsla á farartækjum |
31 Framleiðsla á húsgögnum og innréttingunB
32 önnur framleiðsla
33 Viögeröir og uppsetning vélbúnaöar^B
Verðmæti seldra framleiðsluvara,án fiskvinnslu og fram-
leiðslu málma 2009 og 2010.
Heimild:Hagstofa íslands.
8 8
Arbók VFÍ/TFÍ 2011