Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 136
Dómur Hæstaréttar 2009
Dómur Hæstaréttar í málinu nr. 425/2008, féll svo þann 19. mars 2009 þar sem niðurstaðan
var sú að ógilda bæri eignarnámið á grundvelli þess að skilyrði Stiórnarskrárinnar um
almenningsþörf, sbr. lög nr. 33/1944, hefði ekki verið uppfyllt. Kröfu um ógildingu
framkvæmdaleyfis var hins vegar hafnað. Benti Hæstiréttur á að við mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmdarinnar hefðu allar veglínur verið úrskurðaðar ásættanlegar og
umhverfisáhrif allra veglína verið talin óveruleg. I ljósi þess og að ekki hefði verið sýnt
fram á að vegtæknilegar ástæður eða kostnaður gæti réttlætt það val Vegagerðarinnar að
leggja veginn fremur um land sem var í einkaeigu, en um land sem var í eigu ríkisins,
ógilti Hæstiréttur eignarnámið.
Ákvörðun um legu vegarins næst Norðausturvegi 2009
Gerð var breyting á 1,8 km löngum kafla á veglínu Norðausturvegar, á kaflanum frá
Klapparósi að Katastöðum. Breytingin var gerð í samráði við viðkomandi landeigendur.
Matsskylda breytingarinnar var könnuð og niðurstaða barst í nóvember 2009 um að hún
væri ekki matsskyld.
Framkvæmdir við vestasta hluta vegarins hófust um leið og kærufrestur var útrunninn.
Vegtæknileg atriði
Norðausturvegur var byggður samkvæmt vegtegund Cl, sem er 7,5 m breiður vegur með
7,3 m breiðu bundnu slitlagi. Hönnunarhraði er 70-90 km/klst.
Raufarhafnarvegur var byggður samkvæmt nýjum staðli C7, sem er 7,0 m breiður vegur
með 6,8 m bundnu slitlagi. Hönnunarhraði er 90 km/klst.
Verkframkvæmd
Framkvæmdir á Hófaskarðsleið voru boðnar út í þremur hlutum.
Fyrsti áfangi Norðausturvegar um Hófaskarð var boðinn út í apríl 2007. Um var að ræða
30,6 km langan kafla frá Norðausturvegi skammt norðan Klapparóss að Norðausturvegi
á Fremri-Hálsi, einnig bygging 28 m langrar steinsteyptrar brúar á Ormarsá. Áætluð
efnisþörf fyrir verkið var um 1.085 þús. m3, en þar af var gert ráð fyrir um 375 þús. m3 úr
hönnuðum skeringum en afganginum 710 þús. m3 úr þeim 13 námum sem tilgreindar
voru fyrir verkið. Verkið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Framkvæmdir hófust
sumarið 2007. Verklok voru áætluð 1. nóvember 2009 en drógust vegna dóms Hæstaréttar
og lauk verkinu haustið 2010. Héraðsverk ehf. sá um byggingu áfangans. Áætlaður
heildarkostnaður við hann er 1.810 m.kr.
Annar áfangi Norðausturvegar, Hófaskarðsleiðar, 8,3 km langur kafli, frá núverandi
Norðausturvegi á Fremri-Hálsi að slitlagsenda við Sævarland var boðinn út í apríl 2008.
Verkinu tilheyrði einnig gerð á bogalöguðu stálplöturæsi, með botnlengd 63 m í Víðinesá.
Áætluð efnisþörf fyrir verkið var um 251 þús. m3. Gert var ráð fyrir um 205 þús. m3 úr
skeringum í vegstæði sem nýtt yrði í fyllingar og fláafleyga. Burðarlagsefni og steinefni í
klæðingar, um 46 þús. m3, fengist úr námum í landi Borga og Sævarlands. Framkvæmdir
hófust sumarið 2008 og þeim lauk sumarið 2009. Héraðsverk ehf. sá um byggingu
áfangans. Kostnaður við hann er um 410 m.kr.
Þriðji áfangi, Raufarhafnarvegur (874) Hófaskarðsleið-Flugvöllur, 14,4 km langur kafli, frá
vegamótum Norðausturvegar á Hólaheiði að Raufarhafnarflugvelli var boðinn út í mars
2009. Áætluð efnisþörf fyrir verkið var um 326 þús. m3 en þar af var gert ráð fyrir um 83
þús. m3 úr hönnuðum skeringum og um 244 þús. m3 úr þeim fimm námum sem til-
1 3 4 i Arbók VFl/TFl 2011