Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 66
Varúðarniðurfærsla hefur ekki áður verið færð vegna sjóðfélagalána en vegna óvissu um
áhrif aðgerða fjármálafyrirtækja og stjórnvalda til að laga skuldastöðu heimila var talið
rétt að leggja 0,5% til hliðar vegna mögulegra útlánatapa. Innlend hlutabréf skiluðu 1%
nafnávöxtun á árinu en stærsti hluti innlendra hlutabréfa eru óskráð bréf sem hafa ekki
virka verðmyndun. Alls námu innlend hlutabréf 885 m.kr. í árslok. Þar af var um
þriðjungur í virkri stýringu sem skilaði 26% nafnávöxtun á árinu. Erlend skuldabréf
skiluðu 0,7% ávöxtun og erlend hlutabréf 0,5% í íslenskum krónum en styrking krónunnar
dró verulega úr ávöxtun erlendra verðbréfa. Hlutfall erlendra eigna sjóðsins í árslok var
um 25%. Skuldabréf fyrirtækja og lánastofnana skiluðu 1,8% neikvæðri ávöxtun vegna
aukinnar varúðarniðurfærslu ársins. Sérsniðnar fjárfestingar skiluðu 5,2% neikvæðri
ávöxtun. Stærsti hluti sérsniðinna fjárfestinga er erlendir framtakssjóðir en mestu munar
um varúðarniðurfærslu vegna mezzanine-sjóðs.
Tryggingafræðileg staða samtryggingardeiidar 31.12.2010.
I milljónum króna.
Áfallið Framtíð Heild
Eignir 30.186 30.759 60.945
Skuldbinding (37.348) (29.428) (66.776)
Eign-skuldb.. (7.162) 1.331 (5.831)
% af skuldb.. -19,2% 4,5% -8,7%
------Staða —•— Aætlun
■----------------------------------------------------------- 7
Tryggingafræðileg staða.
Áætlun sjóðsins f átt að jafnvægi.
Tryggingafræðileg staða
Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar var nei-
kvæð um 8,7% í árslok 2010 að teknu tilliti til skerðingar
réttinda 1. janúar 2011 um 5%. Staða áfallinna skuld-
bindinga var neikvæð um 7.162 m.kr. eða 19,2% af áföllnum
skuldbindingum. Staða vegna væntra framtíðariðgjalda
var hins vegar jákvæð um 1.331 m.kr. eða um 4,5% af fram-
tíðarskuldbindingum. Samanlagt var tryggingafræðileg
staða sjóðsins neikvæð um 5.831 m.kr. eða um 8,7%.
Skerðing réttinda 1. janúar 2011 um 5% bætti trygginga-
fræðilega stöðu sjóðsins um 2,5%. Staðan hefði verið þeim
mun verri ef ekki hefði komið til skerðingar. Hluti af
mótframlagi launagreiðenda í samtryggingardeild fer
sjálfkrafa í séreignardeild eða 2% af 8% framlagi. Ef 2%
framlaginu yrði ráðstafað í samtryggingu eins og tíðkast
hjá flestum lífeyrissjóðum myndi það bæta trygginga-
fræðilega stöðu í heild um 9,5% og yrði hún því jákvæð um
0,8%. Tvö prósent framlag samtryggingar í séreign skerðist
ekki þegar réttindi eru skert í samtryggingardeild. Önnur
úrræði sem gætu bætt tryggingafræðilega stöðu er að
lækka makalífeyri úr 60 í 50%, sem er lágmark laga, og
myndi það bæta stöðuna um 1,9%. Breyting á makalífeyri
úr fimm ár í tvö ár, sem er lágmark laga, myndi laga
stöðuna um 1,6%.
Á aðalfundi sjóðsins árið 2009 var samþykkt fimm ára
áætlun stjórnar um að ná tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins
í jafnvægi fyrir árslok 2013. Tryggingafræðileg staða í
árslok 2008 var neikvæð um 16,8% og voru fundarmenn
sammála um það að skerða ekki réttindi sjóðfélaga í einu
skrefi til að ná stöðunni í jafnvægi heldur gera það á lengri
tíma. Á fundinum var samþykkt að skerða réttindi um 10%
á árinu 2009 og réttindaávinnslu um 5%. í árslok 2009 var
tryggingafræðileg staða neikvæð um 14,8% þrátt fyrir
skerðingu á árinu 2009. Á aðalfundi 2010 var ákveðið að
skerða réttindi um 10% sem tók gildi 1. júlí 2010 og á auka-
aðalfundi í september 2010 var ákveðið að skerða réttindi
um 5% sem tók gildi 1. janúar 2011.
Á myndinni hér til hliðar er sýnd áætlun sjóðsins um að ná
tryggingafræðilegri stöðu hans í jafnvægi fyrir árslok 2013.
64 | Arbók VFl/TFi 2011