Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 21
Kjarasamningar
Undirritaður var kjarasamningur KTFÍ, SV, ST og SBF við Samtök atvinnulífsins (SA) 14.
mars 2011 og er hann fyrsti samningurinn sem félögin gera við SA. Samningurinn tók
gildi 1. apríl 2011. Samningur þessi er ótímabundinn réttindasamningur. í honum eru ekki
neinar launatölur eða % hækkanir. Hins vegar eru ákvæði um greiðslu í sjúkrasjóð 1%,
orlofssjóð 0,25%, endurhæfingarsjóð 0,13% og heimildarákvæði um greiðslu í
Starfsmenntunarsjóð 0,22% af heildarlaunum. Dagvinnutími er 37,5 klst. á viku og greitt
er orlofs- og desemberuppbót í samræmi við heildarkjarasamning SA á almennum
markaði.
Kjarasamningar KTFÍ og FRV: Samningurinn var undirritaður 26. janúar sl. og gildir
hann frá 1. febrúar 2011 til 31. desember 2011. Helstu breytingar eru 2,4% launahækkun
1. febrúar og 2,5% 1. júlí n.k.
Kjarasamningur KTFÍ og ríkisins: Gengið var frá samningi við samninganefnd ríkisins,
í samvinnu með BHM, þann 28. júní 2008 þar sem gildandi samningur var framlengdur
frá 1. júní 2008 til 31. mars 2009. Engar viðræður hafa verið á liðnu starfsári.
Kjarasamningur KTFÍ og Reykjavíkurborgar: Samningur var undirritaður 30. nóvember
2008 og gilti frá 1. nóvember 2008 til 31. ágúst 2009. Lítið hefur verið um kjaraviðræður á
starfsárinu.
Kj arasamningur KTFÍ og Launanefndar sveitarfélaga: Samningur undirritaður 2.
desember 2008 og gilti frá 1. desember 2008 til 31. ágúst 2009. Litlar sem engar viðræður
hafa verið á sl. starfsári.
Kjarasamningur KTFÍ og Orkuveitu Reykjavíkur: Gildistími frá 1. apríl 2008 til 31.
desember 2010. Samningaviðræður að hefjast.
Kjarasamningur KTFÍ og RARIK ohf.: Gildistími frá 1. maí 2008 til 31. desember 2010.
Samningaviðræður að hefjast.
Kjarasamningur KTFÍ og ISAVIA ohf.: Samningaviðræður eru að hefjast við ISAVIA,
sem stofnað var með sameiningu Flugstoða og Reksturs Keflavíkurflugvallar.
Auk þess að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna heldur stjórn KTFÍ ásamt skrif-
stofu félagsins utan um kjaratengda sjóði félagsmanna.
Skýrsla Fjölskyldu- og styrktarsjóðs KTFÍ 2010
Stjórn sjóðsins er skipuð þeim Samúel Smára Hreggviðssyni formanni, Óla Jóni Hertervig
og Bjarna Bentssyni. Stjórnin hélt átta fundi á sl. ári og úthlutaði 105 styrkjum til félags-
manna að upphæð um 5,1 millj. kr. Um er að ræða aukningu frá fyrra ári þegar úthlutað
var 62 styrkjum að upphæð 4,7 millj. kr.
Styrkveitingar skiptust þannig:
Dagpeningar: 4 styrkir að upphæð 1.376 þús. kr.
Líkami og sál: 74 styrkir að upphæð 1.762 þús. kr.
Laseraðgerðir og gleraugu: 13 styrkir að upphæð 739 þús. kr.
Tannviðgerðir: 13 styrkir að upphæð 1.141 þús. kr.
Heyrnartæki: 1 styrkur að upphæð 100 þús. kr.
Rekstrarhagnaður sjóðsins nam 5,5 millj. kr. en innborguð árgjöld voru tæplega 8,6 millj.
kr. Eigið fé var í árslok tæplega 60,8 millj. kr.
Skýrsla Sjúkrasjóðs KTFÍ 2010
Stjórn sjóðsins er skipuð þeim Jóhannesi Benediktssyni formanni, Árna Þór Árnasyni og
Helga Baldvinssyni. Stjórn Sjúkrasjóðs hélt níu fundi á sl. ári og úthlutaði 158 styrkjum til
Félagsmál VFÍ/TFÍ