Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 88
Utanríkisverlsun
Vöruviðskipti við útlönd 2070 - samantekt
Árið 2010 voru fluttar út vörur fyrir 561,0 milljarða króna fob en inn fyrir 440,8 milljarða
króna fob, 477,2 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað
á fob-verðmæti, sem nam 120,2 milljörðum króna fob en 90,3 milljarða króna afgangur var
árið 2009. Verðmæti vöruútflutnings jókst um 12,0% frá fyrra ári á gengi hvors árs og
vöruinnflutningur jókst um 7,0%. Sjávarafurðir voru 39,3% alls vöruútflutnings, í þriðja
árið í röð með minni hlutdeild en iðnaðarvörur. Verðmæti þeirra jókst um 5,7% frá fyrra
ári á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 55,4% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti
þeirra um 27,7% á gengi hvors árs. Stærstu vöruflokkar vöruinnflutnings voru hrá- og
rekstrarvörur með 33,6% hlutdeild, fjárfestingarvörur með 22,3% hlutdeild og neyslu-
vörur aðrar en mat- og drykkjarvörur með 14,7% hlutdeild. í krónum talið varð mest
aukning í innflutningi hrá- og rekstrarvara og fjárfestingarvara. Mest viðskipti voru við
Evrópska efnahagssvæðið, EES, 81,8% af vöruútflutningi og 61% af vöruinnflutningi. Til
Evrópusambandsins, ESB, fór 77,6% vöruútflutnings og 52,0% vöruinnflutnings kom
þaðan. Stærstu viðskiptalönd voru Holland í vöruútflutningi, 34,0% af heild, og Noregur
í vöruinnflutningi, 9,1% af heild.
Vöruskiptajöfnuður
A árinu 2010 nam verðmæti vöruút-
flutningsins í heild 561,0 milljörðum króna
fob, heildarvöruinnflutningur cif nam 477,2
milljörðum, og varð því vöruútflutningur
umfram vöruinnflutning á árinu 2010
jákvæður um 83,8 milljarða samkvæmt
þessum mælikvarða. Halli hefur verið á
vöruskiptunum (fob-cif) allan þennan áratug
að árunum 2009 og 2010 undanskildum.
Árið 2009 var 10,9% halli af útflutnings-
verðmæti og 14,9% árið 2010. Hallinn hefur
verið frá um 1,6% árið 2002 upp í 78,0% árið
2006. Hallinn á vöruskiptunum var 10,3%
árið 2008 og 40,8% árið 2007.
I greiðslujöfnuði og þjóðhagsreikningum er
miðað við vöruskiptajöfnuð, reiknaðan út
frá fob-verði bæði vöruinnflutnings og
vöruútflutnings. Vöruinnflutningur fob nam
440,8 milljörðum króna og var vöruskipta-
jöfnuðurinn (fob-fob) 2010 því hagstæður
um 120,2 milljarða en var hagstæður um 90,3
milljarða 2009. Vöruskiptajöfnuður fob við
útlönd á verðlagi hvers árs hefur verið hag-
stæður tvisvar áður á síðustu tíu árum, þ.e.
árið 2009, 6% af vergri landsframleiðslu og
árið 2002,1,6%. Hallinn (fob-fob) var mestur
árið 2006, 13,6% af vergri landsframleiðslu.
Á fyrra línuriti hér til hliðar má sjá vöru-
skiptajöfnuð sem hlutfall af vöruútflutningi
og vergri landsframleiðslu og seinna línuriti
þróun vöruútflutnings fob, vöruinnflutnings
fob og vöruskiptajafnaðar fob.
8 6
Arbók VFl/TFl 2011