Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 101
2010 og lækkuðu um 603 milljónir króna milli ára. Afgangurinn, 5,4% af útgjöldum hins
°pinbera til fræðslumála, rann til annarra fræðslumála, svo sem stoðþjónustu og í
stjórnunarkostnað.
Utgjöld til fræðslumála voru ríflega 367 þúsund krónur á mann árið 2010. Þar af var
kostnaður vegna grunnskóla ríflega 170 þúsund krónur á mann, vegna framhaldsskóla 62
þúsund krónur og vegna háskólastigs um 79 þúsund krónur. Langstærsti hluti útgjalda
hins opinbera til fræðslumála eru samneysluútgjöld, en fjárfestingarútgjöld vega einnig
þungt. Tilfærslur, sem eru að mestu til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, voru um 6-7%
útgjaldanna.
Þegar útgjöldum heimila til fræðslumála er bætt við útgjöld hins opinbera eru heildar-
útgjöld til fræðslumála 8,3% af landsframleiðslu árið 2010, en það samsvarar 128,2
•nilljörðum króna. Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarin ár, en hækkar
nokkuð 2009. Um 9% útgjaldanna eru fjármögnuð af heimilunum. Fræðsluútgjöldin á
föstu verði hafa vaxið jafnt og þétt frá 1998, en dregist saman á síðustu tveimur árum og
er vöxturinn um 40% frá 1998 eða 20,4% á mann.
Almannatryggingar og velferðarmál
Undir þennan málaflokk, almannatryggingar og velferðarmál, falla annars vegar ýmiss
konar félagslegar tilfærslur til einstaklinga, t.d. vegna elli, örorku, veikinda, tekjumissis,
fæðinga og atvinnuleysis, og hins vegar ýmiss konar velferðarþjónusta, einkum við börn,
aldraða og fatlaða. Umsjón með tekjutilfærslum er að mestu í höndum almannatrygginga.
Velferðarþjónusta við börn og aldraða er hins vegar að mestu á vegum sveitarfélaga og
velferðarþjónusta við fatlaða á vegum ríkisins.
A árinu 2010 runnu rúmlega 172 milljarðar króna til þessa málaflokks, eða 11,2% af lands-
framleiðslu, og nam hækkunin milli ára 2,8 milljörðum króna. Munar þar mestu um 1,6
núlljarða króna hækkun vegna húsnæðisaðstoðar og 1,1 milljarðs króna hækkun vegna
°rorku og fatlaðra. í hlutfalli af landsframleiðslu lækkuðu útgjöld þessa málaflokks um
0/1 prósentustig frá árinu 2009.
Úfgjöld hins opinbera vegna örorku og fötlunar og fjölskyldna og barna eru umfangsmestu
utgjaldaliðirnir. Útgjöld vegna örorku og fötlunar námu 42 milljörðum króna og hækkuðu
um 1,1 milljarð króna milli ára eða um 2,7%. Til fjölskyldna og barna rann sama fjárhæð
°g hækkuðu þau um 309 milljónir króna milli ára. Útgjöld vegna öldrunar voru 32,5
milljarðar króna og lækkuðu um 877 milljónir króna milli ára. Framlög vegna atvinnuleysis
uámu 25,3 milljörðum króna 2010 samanborið við 25,7 milljarða 2009 og 5,4 milljarða
króna 2008.
Utgjalda hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála eru félagslegar tilfærslur
tú heimilanna, en um 27% er samneysluútgjöld af ýmsu tagi og afgangurinn að stærstum
hluta aðrar tilfærslur og fjárfestingarútgjöld. Samneysla hins opinbera í velferðarmálum
var 40 milljarðar króna 2010. Þar af var samneysla sveitarfélaga tæplega þrír fimmtu
hlutar, sem er að mestu umönnun barna og aldraðra, meðal annars rekstur barna- og
elliheimila. Samneysla ríkissjóðs á þessu sviði var að mestu þjónusta við fatlaða. Afgang-
urinn var samneysla almannatrygginga. Rúmlega sjö tíundu hlutar af heildarsamneyslu
hins opinbera í velferðarmálum er launakostnaður. Fjárfesting hins opinbera í velferðar-
rnálum var 1,7 milljarðar króna 2010.
Arið 2010 voru útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála 541 þúsund
krónur á mann á verðlagi þess árs, eða 9,5 þúsund króna lægri fjárhæð en árið á undan á
sama verðlagi. Útgjöld hins opinbera vegna fjölskyldna og barna voru rúmlega 132
þúsund krónur á mann 2010 og vegna örorku og fötlunar ríflega 132 þúsund krónur.
Ufgjöld vegna öldrunar námu hins vegar rúmlega 102 þúsund krónum á mann árið 2010
°g vegna húsnæðisaðstoðar 51 þúsund krónum. Kostnaður vegna atvinnuleysis nam um
80 þúsund krónum á mann 2010 og lækkaði um 4 þúsund krónur frá 2009.
Tæknianná