Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 239
t'ru skilgreind fyrir hvern bíl og þannig haft áhrif á það á hvaða vegum hver bíll sinnir
hálkuvörnum, eftir staðsetningu bíla. Umrædd tilfelli eru skýrð nánar hér að neðan.
• Tilfelli 1: Engin þjónustusvæði eru skilgreind, því geta bílar farið um allt
gatnanetið og þjónustað hvaða veg sem er óháð staðsetningu.
• Tilfelli 2: Þjónustusvæði eru skilgreind fyrir hvern bíl sem næst núverandi
verkskipulagi.
• Tilfelli 3: Þjónustusvæði eru skilgreind fyrir hvern bíl sem í grunninn byggir á
núverandi verkskipulagi en þó með ýmsum breytingum.
Tilgangur verkefnisins er að leita leiða til þess að auka áreiðanleika, skilvirkni og
hagkvæmi hálkuvarna á Suðvestursvæði vegagerðarinnar. í því felst að finna hentugar
staðsetningar og fjölda þjónustubíla þannig að vinnuálag milli bíla sé eins jafnt og kostur
er. Einnig að kortleggja akstursleiðir til hálkuvama, þar með talið akstursleiðir í gegnum
rnislæg vegamót. Markmið er snúa að hálkuvörnum eru annars vegar að lækka kostnað
nieð því að lágmarka akstursvegalengdir þjónustubíla, hins vegar að auka umferðaröryggi
með áreiðanlegri stjórnun hálkuvarna þannig að tryggt sé að allir vegir, sem á að
hálkuverja, séu hálkuvarðir innan skilgreinds þjónustutíma.
Hugbúnaðurinn Network Analyst [2] sem byggir ofan á ArcGIS er notaður við úrlausn
verkefnisins. Network Analyst er hannað til þess að líkja nákvæmlega eftir almennum
akstri á götum og nýtist því vel í greiningarvinnu á akstursleiðum. Hugbúnaðurinn býður
upp á að sett séu inn öll þau skilyrði og þvinganir sem þarf til þess að uppfylla gæða-
kröfur eins og mikilvægt er í þessu verkefni. Gatnanetið sem unnið er með byggist á
miðlínugrind allra vega á svæðinu.
Fræði
1 grunninn snúast akstursleiðaverkefni um að ákvarða mengi akstursleiða þar sem hver
akstursleið endar á sama stað og hún hefst og að allir vegir sem á að þjónusta séu
þjónustaðir, þannig að allar þvinganir og kröfur séu uppfylltar og heildarkostnaður
lágmarkaður [3]. Yfirlit yfir almenn einkenni akstursleiðaverkefna eins og fyrir vetrar-
þjónustu þar sem salti er dreift á vegi má sjá í töflu 2.
Tafla 2. Almenn einkenni akstursleiðaverkefna fyrir vetrarþjónustu [3].
Þáttur Einkenni
Gatnanet Stefnugreint eða ekki, þjónustustig, hámarkstími til að ljúka þjónustu.
Veghluti Skilgreint þjónustustig, lengd veghluta, þjónustu- og aksturstími,
tímarammi þjónustu, fjöldi akreina.
Svæði Hönnun svæðisskiptingar, þéttleiki, fjöldi og lögun svæða, jafnvægi á
stærð og vinnuálagi milli svæða, nálægð/samfella svæða.
Starfs- og Staðsetning innan hvers svæðis, fjöldi bíla á hverri starfsstöð, fjöldi
birgðastöðvar birgðastöðva þar sem bílar geta fyllt á saltbirgðir.
Bílar Starfsstöð, tegund og burðargeta dreifara, þjónustusvæði, fjöldi
akstursleiða.
Bílstjórar Hámarksaksturs- og vinnutími, hvíldartími, yfirvinna.
Akstursleiðir Upphafs- og endastöð akstursleiða, upphafstími akstursleiða, þjónusta
eina eða fleiri akreinar í ferð, beygjubönn, mörk þjónustusvæðis.
Markmið Lágmarka heildarkostnað, lágmarka fjölda bíla í þjónustu, lágmarka
heildarakstur og hlutfall fríaksturs af heildarakstri.
Ritrýndar vísindagreinar i237