Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Blaðsíða 173
eínastjómun. Þess má einnig geta að átján kandídatar brautskráðust frá deildinni í
endurnýjanlegum orkufræðum í samstarfi við Háskólann á Akureyri árið 2010 og þrír í
s]álfbærum orkufræðum í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur og Háskólann í Reykjavík.
Rannsóknir við IVT deild hafa verið í örum vexti, ekki síst með tilkomu nýrra og öflugra
starfsmanna og fjölgun doktorsnema. Þessar rannsóknir eru stundaðar í góðu og öflugu
sarnstarfi við bæði erlenda og innlenda háskóla, sem og fyrirtæki og stofnanir. Rann-
sóknirnar hafa verið styrktar bæði af mnlendum og erlendum rannsóknasjóðum og eru
P®r af margvíslegum toga. Af alþjóðlegum verkefnum má nefna Evrópuverkefnið CRISIS
°g norræna verkefnið ICEWIND. Aukþess má nefna að starfsfólk deildarinnar er leiðandi
1 uppbyggingu á Kerfislíffræðisetri við Háskólann í samstarfi við Líf- og umhverfis-
v>sindadeild og Læknadeild.
Til þess að gera örlitla grein fyrir þeim verkefnum sem meistaranemar deildarinnar hafa
unnið að að undanförnu eru hér gefin nokkur dæmi: í fjármálaverkfræði og reikniverkfræði
nafa nemendur skoðað verðlagningu á afleiðum, skulda- og áhættustýringu sveitarfélaga,
nokkun og áætlun kostnaðar í upplýsingatækni, líkön fyrir vanskilahlutfall sparisjóðs,
arðsemismat á flutningi koldíoxíðs frá Sorpu til garðyrkjubænda og nýja reikniaðferð til
að greina útfellingar í varmaskiptum. í iðnaðarverkfræði og vélaverkfræði hafa meistara-
verkefni fjallað um greiningu á fjölda og heildarstærð tjóna vegna bílslysa eftir póst-
numerum, áhrif tekju- og verðbreytinga á eftirspurn eftir eldsneyti og bílum á íslandi,
arðsemisgreiningar, fjárstýringu með bestun, gerð rennslislykla, samantekt og hagræna
greiningu á ferli fersks fisks frá veiðum til neytanda, greiningu á ferli bögglavinnslu með
straumlínustjórnun, beitingu kvikra kerfislíkana til að greina meðferðir á lyndis- og
kv>'ðaröskunum, straumlínustjórnun og birgðastýringu við greiningu á íhlutalager,
aðferðir til að leiðrétta fasteignamat, notkun iðnaðarverkfræði í mjólkurvinnslu, hermun
a jarðhitakerfum, notendastýringu gervifóta og úttekt á orkumálum í Vestmannaeyjum
tt>eð áherslu á sjálfbærni. Verkefni þessi eru aðgengileg á www.skemman.is. Þá er ótalinn
fjoidi styttri lokaverkefna í MPM náminu, en titla þeirra má finna á síðunni, www.mpm.
ls/verkefni_nemenda.
Af upptalningunni hér að ofan má sjá að mikil fjölbreytni er í verkefnavali og breiddin
^ikil. Einnig má geta þess að í mörgum tilfellum hafa verkefnin verið unnin í samvinnu
v>ð fyrirtæki sem látið hafa í té gögn og aðstoð og í nokkrum tilfellum vinnuaðstöðu og
*)arhagsstyrk. Vefsetur deildarinnar er von.hi.is/ivt
Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Aðsókn að grunnnámi í Rafmagns-
tölvuverkfræðideild hefur fjór-
faldast á síðustu árum. Nemendur
^ðildarinnar hafa margir hverjir
staðið sig afar vel í námi, t.d. hlotið
Wrðlaun úr Minningarsjóði Þorvalds
' innbogasonar, verið valdir til að
taka þátt í SURF (Summer Under-
Sraduate Research Fellowship)
Výrkefni Caltech-háskólans og unnið
til margvíslegra annarra verðlauna.
l-)eildin brautskráði þrjá doktors-
'leiTla á árinu, Giuliu Troglio, Alberto
Villa og Mauro Dalla Mura. Erlendir
nemendur við deildina eru 15-20% af
studentahópnum, bæði reglulegir og
skiptistúdentar.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana |171