Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1987
VINNUSTÁÐAFUNDIR STJÓRNMÁLAFLOKKANNA FYRIR ALÞINGISKOSNINGARNAR1987
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks hjá starfsmönnum Eimskips í Sundaskála:
Fj ölflokkaríkisstj óm-
ir skapa glundroða
STARFSMÖNNUM Eimskips í
Reykjavík var tíðrætt um upp-
lausn og glundroða i heimi
íslenskra stjórnmáia, er þeir
voru heimsóttir í hádegisverð-
arhléi þeirra í Sundaskála sl.
þriðjudag. I heimsókn á vinnu-
staðafundi voru þau Birgir
Isleifur Gunnarsson, annar
maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík og
Sólveig Pétursdóttir, sem
skipar sjöunda sæti sama lista.
Þá var nafn Alberts Guð-
mundssonar oft nefnt, en
mjög skiptar skoðanir virtust
vera um ástæðu þess að Al-
bert sagði af sér sem ráðherra
og stofnun Borgaraflokksins.
Þau Birgir og Sólveig fluttu
fyrst stuttar framsöguræður,
gáfu síðan orðið laust til fyrir-
spurna, en eyddu langstærstum
hluta hádegisverðartímans í að
rabba við starfsmenn yfir kaffi-
bolla og skiptast á skoðunum.
Sólveig tók fyrst til máls og rakti
nokkuð ástand þjóðmála eins og
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Birgir ísleifur, lengst til vinstri á myndinni, og Sólveig, fyrir miðri mynd á bak við, tala við starfs-
menn Eimskips í Sundaborg.
það var þegar núverandi ríkis-
stjórn tók við. Sagði hún stórátak
hafa verið gert á mörgum svið-
um. Þá sagði hún það áberandi
í kosningabaráttunni, að sumir
flokkanna lofuðu gulli og græn-
um skógum. Hún varaði við
afleiðingum þess að sumt af
þessu næði í gegn og benti til
að mynda á, að hugmynd Al-
þýðuflokksins um kaupleiguíbúð-
ir kæmu til með að kosta
skattgreiðendur ómælda fjár-
muni. Hún minnti og á kjörorð
sjálfstæðismanna, stétt með
stétt, og fjallaði í lokin nokkuð
um fjölskyldu- og félagsmál.
Birgir gerði fjögur atriði að
umtalsefni. í fyrsta lagi efna-
hagsástandið fyrir fjórum árum
og hvemig tekist hefði að ná nið-
ur verðbólgunni. í öðm lagi aukið
frjálsræði, sérstaklega hvað varð-
ar fjölmiðla og afnám ríkiseinok-
unar á útvarpi og sjónvarpi. Þá
ræddi hann árangur á félags-
málasviði og í lokin gerði hann
ástandið í stjómmálunum að
umræðuefni. Hann sagði íslend-
inga hafa verið heppna því hér
hefðu oftast aðeins verið fjórir
stjórnmálaflokkar en nú virtist
sem verið væri að snúa á ógæfu-
hliðina, þar sem flokkar yrðu t.d.
níu í Reykjavík og tíu í Norður-
landaskjördæmi eystra fyrir
komandi alþingiskosningar. Fjöl-
flokkakerfi sagði hann hafa
reynst mjög illa, erfitt væri að
mynda ríkisstjómir, eins og til
dæmis hefði sýnt sig í Danmörku
og á Italíu. Hann sagði því um-
hugsunarefni, hvort ekki væri
rétt að halla sér að stómm og
sterkum flokki, eins og hann orð-
Fundur Alþýðuflokks í íslenska álverinu við Straumsvík:
Alþýðuflokkurinn á nú tæki-
færi á að verða stærstur
- að minnsta kosti næststærstur, sagði Jón Baldvin Hannibalsson m.a.
Morgunblaðið/Bára Kristinsdóttir.
„Atburðimir innan Sjálfstæðisflokksins era eins og í sápuóperunum Dallas og Dynasti" sagði Jón Bald-
vin, en honum lá hátt rómur og var mikið niðri fyrir á fundinum.
ÞAÐ VAR auðheyrt á þeim Jóni
Baldvini Hannibalssyni formanni
Alþýðuflokksins og Kjartani Jó-
hannssyni efsta manni á lista
flokksins í Reykjaneskjördæmi,
að þeir líta á Þorstein Pálsson
og Sjálfstæðisflokkinn sem höf-
uðandstæðing sinn í komandi
kosningum. Þetta kom fram á
vinnustaðafundi þeirra félaga í
íslenska álverinu við Straumsvík,
sem haldinn var í hádeginu á
föstudag í síðustu viku. Þá voru
þeir harðorðir í garð núverandi
ríkisstjórnar og ráðamanna, svo
harðorðir að einn starfsmann-
anna, Jón Magnússon, spurði í
lok fundarins, hvort það væri
skoðun forustumanna Alþýðu-
flokksins að þeir sem hefðu set.ið
við stjórnvölinn í landinu undan-
farið væru „bara algjörir aular“.
Á meðan fyrsti hópurinn af þrem-
ur sótti mat sinn og gekk til sæta
spiluðu þeir félagar „átján rauðar
rósir“ af segulbandstæki, en þeir
sögðu að lagið yrði helgað kosn-
ingabaráttu Alþýðuflokksins að
þessu sinni. Þeir skiptust á að flytja
tölur og gáfu orðið laust til fyrir-
spurna á milli. Jón Baldvin ræddi
m.a. síðustu atburði innan Sjálf-
stæðisflokksins og líkti þeim m.a.
við atburðarrásina í bandarísku
„sápuóperunum Dallas og Dynasti.
Hann sagði þjóðina eiga að draga
af þessum atburðum kalda ályktun
og hún væri: „Við eigum að nota
tækifærið núna, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn er að bresta, til að efla
hér til valda og áhrifa og stjórn-
málaforustu stóran jafnaðarmanna-
flokk." Hann sagði ennfremur, að
Alþýðuflokkurinn ætti nú tækifæri
á að verða stærsti, að minnsta kosti
næststærsti flokkur landsins.
Kjartan Jóhannsson gerði fyrst
að umtalsefni fjölda framboða í
landinu og sagði að þessi tíu fram-
boð enduðu áreiðanlega með
upplausn stjómmálanna. Hann
sagði alþýðuflokksmenn sameinaðri
nú en nokkru sinni fyrr og rakti
síðan stöðuna í öðrum flokkum.
Hann kvað Framsóknarflokkinn í
þremur hlutum, Sjálfstæðisflokkinn
hafa klofnað í tvennt um Ieið og
tönn í ljósmyndara Þjóðviljans. Inn-
an Alþýðubandalagsins sagði hann
stöðuna þá, að þingmennimir gætu
helst ekki talast við og lykillinn að
breyttri stjórnarstefnu væri því að
Alþýðuflokkurinn fengi góða kosn-
ingu. Hvatti hann menn til að efla
Alþýðuflokkinn þannig að hann
fengi fjóra þingmenn í Reykjanes-
kjördæmi. Með því myndi Gunnar
G. Schram af lista Sjálfstæðisflokks
falla.
Þeim Kjartani og Jóni vartíðrætt
um skattamál og sagði Jón skatta-
kerfíð svívirðu þar sem 8.200
fyrirtæki af 11.000 í landinu bor-
guðu engan tekjuskatt. Hann sagði
Þorstein Pálsson varðengil eða
varðhund þessa skattkerfís og færi
honum því illa að ræða um siðferði
og siðgæði. Kjartan sagði að oddvit-
inn í Kjósinni hefði tjáð sér, að þar
væru námsmenn hæstu skattgreið-
endumir. Bændumir í Kjósinni
borguðu ekki tekjuskatt, þrátt fyrir
stór og myndarleg býli.
Nokkrar fyrispumir komu í lok
fundarins og verða þær raktar hér:
Hvað tryggir að ekki fari eins hjá
Alþýðuflokknum og eftir kosning-
amar 1978? Kjartan: „Það, að við
emm reynslunni ríkari.“
- Hvaða möguleika á Alþýðu-
flokkurinn á að mynda stjóm eftir
næstu kosningar? Mér fínnst að lítið
hafi borið á ykkar mönnum undan-
farið, sérstaklega Jóni Baldvin. Er
hann núna að sækja í sig veðrið?
Kjartan svaraði þessu á þann veg
að það væri rétt að Jón Baldvin
væri að sækja í sig veðrið og ætti
hann eftir að gera það enn frekar.
Hvað varðar það að mynda stjóm
þá væri allt hugsanlegt í þeim efn-
um. Spumingu um, hvort þeir teldu
Albert geta tekið fylgi af þeim og
hvort Albert gæti náð oddastöðu
við myndun ríkisstjórnar svaraði
Kjartan á þá vegu, að þeir óttuðust
ekki Albert og að þeir myndu í það
minnsta ekki leita til Alberts eftir
kosningar með eitt eða neitt.
Þá kom fram sú spurning af
hverju ekki væri minnst á utanríkis-
mál í þeim kosningabæklingi sem
dreift var á fundinum og hver stefna
flokksins væri í þeim málum. Kjart-
an svaraði og sagði m.a., að
alþýðuflokksmenn væru fylgjandi
varnarsamstarfi okkar við Banda-
ríkin og verunni í Atlantshafs-
bandalaginu því reynslan hefði sýnt
að þannig hefðum við fengið að
njóta friðar. Hann kvaðst síðan vilja
nota tækifærið til að ræða nokkuð
um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd
og tillögur í þeim efnum, en þar
hefðu Alþýðubandalagsmenn og
ýmsir aðrir viljað rangtúlka skoðan-
ir þeirra. Hið rétta væri að þeir
hefðu nákvæmlega sömu skoðun
og aðrir jafnaðarmannaflokkar á
Norðurlöndum, eins og komið hefði
í ljós á fundi utanríkisráðherra
Norðurlanda hér fyrir skemmstu.
Hann sagði utanríkisráðherra
Svíþjóðar og Noregs báða jafnaðar-
menn og að hann hefði rætt við þá
báða nýverið. Kjartan sagði síðan:
Þeim er það fyllilega ljóst jafnaðar-
mönnum á hinum Norðurlöndunum,
eins og okkur, að einhliða yfirlýsing
eins og Alþýðubandalagið og ýmsir
aðrir eru að heimta, kæmi ekki til
gangs, en hún gæti orðið til ógagns.
Auðvitað eru hér engin kjarnorku-
vopn og ekki til umræðu að þau
komi hingað. En það að gefa sér-
staka yfírlýsingu þarf að vera liður
í stærra samhengi, - til að draga
almennt úr spennu í Evrópu. Af-
greiðsla ráðherra Norðurlandanna
kemur því vel heim og saman við
skoðanir okkar í Alþýðuflokknum."
Einn fundarmanna vitnaði í orð
frummælenda um skattsvik og
spurði hverja þeir teldu helstu
skattsvikarana, hvort þeir héldu að
það væru launamenn. Kjartan svar-
aði og sagðist ekki telja að svo
væri, langstærstu upphæðimar
lægju hjá sjálfstæðum atvinnurek-
endum. Hann sagði ennfremur:
„Þið munið kannski eftir því, að
Jóhanna Sigurðardóttir og Þór-